Yfir hundrað þúsund gert kröfu: „Réttlæti skal ná fram að ganga“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 25. febrúar 2026 14:32 Alls hafa borist 115 þúsund kröfur í tjónaskrá fyrir Úkraínu sem sett var á fót á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Reykjavík fyrir þremur árum. Gert er ráð fyrir að skaðabótanefnd taki til starfa innan tveggja ára. Formaður tjónaskrárinnar segir um fordæmalaust starf að ræða og að ekki verði slegið slöku við þótt á móti blási á alþjóðavettvangi.
Tjónaskráin var sett á fót í kjölfar leiðtogafundar Evrópuráðsins sem fram fór í Reykjavík í maí 2023. Verkefnið hefur það að markmiði að gera Úkraínumönnum kleift að skrásetja og sækja bætur vegna þess tjóns sem þeir hafa orðið fyrir sem rekja má til innrásarstríðs Rússa. Nú eru fjögur ár liðin síðan allsherjarinnrás Rússa hófst í Úkraínu, en Róbert Spanó, formaður tjónaskrár Evrópuráðsins fyrir Úkraínu, segir í skriflegu svari til fréttastofu að til þessa hafi borist 115 þúsund kröfur í tjónaskrána. Þá var alþjóðasamningur um stofnun skaðabótanefndar samþykktur í Haag í desember síðastliðnum, en nú þarf tilskilinn fjöldi ríkja að fullgilda samninginn til að hann taki gildi. Róbert segir að gera megi ráð fyrir að vinna nefndarinnar hefjist eftir 18-24 mánuði. Ísland var í hópi þeirra 35 ríkja sem undirrituðu samning um stofnun skaðabótanefndarinnar, en undirritunin fór fram á ríkjaráðstefnu á vettvangi Evrópuráðsins í Hollandi með þátttöku Volodómír Selenskí Úkraínuforseta, líkt og greint var frá í tilkynningu frá Stjórnarráðinu í desember. Þá stendur yfir vinna á vettvangi tjónaskrárinnar við að opna fyrir nýja tjónsflokka og tekið er við kröfum, þrátt fyrir að stríðið geysi enn. Þessi vinna er fordæmalaus að sögn Róberts, en það sé eindregið markmið stjórnarinnar að ekki verið slegið slöku við þótt á móti blási á alþjóðavettvangi. „Réttlæti skal ná fram að ganga,“ segir ennfremur í svari Róberts.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira