Munaðarlausi apinn í Japan farinn að hafa áhrif á Íslandi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 26. febrúar 2026 22:01 Hinn barnungi Punch hefur leitað huggunar í Djungelskog apanum frá Ikea og orðið heimsfrægur fyrir vikið. David Mareuil/Getty Images Tuskudýr í Ikea á Íslandi nýtur vaxandi vinsælda og er ástæðuna að finna í dýragarði í Japan.
Tuskudýrið, sem er órangútan, virðist ekki vera neitt ýkja merkilegt en staðreyndin er sú að víðsvegar í Ikea verslunum um heim allan er það uppselt og bangsinn fer sumstaðar á Ebay á tugi þúsunda. Þessar vinsældir má þakka hinum japanska makakíapa Punch sem fæddist í júlí í dýragarði í Japan og var yfirgefinn af móður sinni stuttu seinna. Starfsmenn dýragarðsins gáfu honum þá tuskudýrið úr Ikea og úr varð einstakt samband sem vakið hefur heimsathygli á samfélagsmiðlum. Svo mikla athygli að tuskudýrið selst nú eins og heitar lummur og vinsældirnar hafa náð til Íslands. Meiri áhugi „Apinn hefur alltaf verið eitt vinsælasta mjúkdýrið okkar, við höfum vissulega séð aukningu í sölu, þannig það þarf engum blöðum að fletta um það,“ segir Birna Bogadóttir verslunarstjóri Ikea á Íslandi. Birna segir auknar vinsældir tuskudýrsins eiga sér nokkrar birtingarmyndir. „Við höfum fengið nokkrar fyrirspurnir, við höfum líka séð krakka vera að benda á hann: Hey, hér er apinn, svo er apafjöskyldan líka stærri, það er ekki bara þessi hérna, það eru fleiri apar eins og þssi hérna og svo er svarti apinn sem við erum líka með hérna, þannig fullt af skemmtilegum öpum.“ Og Ikea á heimsvísu hefur nýtt einstakt samband japanska apans og tuskudýrsins óspart á samfélagsmiðlum sínum. Birna segir starfsfólk Ikea hugsa munaðarlausa apans með hlýju. „Þetta bræðir mann alveg, bæði að sjá vinasambandið á milli svo er þetta gott fyrir Ikea hjartað að sjá svona góðan apa. Við náttúrulega erum mjög von því hér að sjá litla krakka með apa í hönd og líka fullorðið fólk en það er sérstaklega sweet að sjá apa með apa.“ View this post on Instagram A post shared by IKEA Canada (@ikeacanada)
Verslun Samfélagsmiðlar Dýr Japan IKEA Tengdar fréttir Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Japanski makakíapinn Punch, sem býr í dýragarði utan Tókýó, er einn frægasti api heims um þessar mundir. Myndskeið af honum og órangútantuskudýri úr Ikea, óvæntu tvíeyki, dreifast sem eldur í sinu um netmiðla. 21. febrúar 2026 21:07 Mest lesið Stjórnendur þurfa líka stuðning og FOBO á vinnustöðum eykst Atvinnulíf Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Viðskipti innlent Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Sjá meira
Yfirgefinn apaungi finnur huggun í apabangsa úr Ikea Japanski makakíapinn Punch, sem býr í dýragarði utan Tókýó, er einn frægasti api heims um þessar mundir. Myndskeið af honum og órangútantuskudýri úr Ikea, óvæntu tvíeyki, dreifast sem eldur í sinu um netmiðla. 21. febrúar 2026 21:07