Sýn skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi Samúel Karl Ólason skrifar 26. febrúar 2026 19:46 Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar. Vísir/Anton Brink Sýn hf. skilaði hagnaði á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Forstjóri segir árið umbreytingaár og það marki ákveðin tímamót í kjölfar ákvarðana sem renna eigi styrkari stoðum undir reksturinn. Aðgerðir stjórnenda séu að skila árangri, þrátt fyrir erfiðar aðstæður, en heilt yfir síðasta ár tapaði félagið 634 milljónum.
Heildartekjur fyrirtækisins á ársfjórðungnum voru rétt rúmir sex milljarðar og hækkuðu um sex prósent milli ára. Hagnaður var 122 milljónir en á sama tímabili í fyrra var tapið tæplega 1,2 milljarðar króna en í uppgjöri félagsins segir að leiðrétt fyrir virðisrýrnun hafi tapið verið 33 milljónir í fyrra. EBITDAaL var 1,3 milljarðar á fjórðungnum og jókst um 32,3 prósent frá sama tímabili í fyrra. Fjárfestingar námu rétt rúmum milljarði en EBITDAaL að frádregnum fjárfestingum var jákvætt um 291 milljón, samanborið við 194 milljónir á fjórða ársfjórðungi í fyrra. Hrein fjármagnsgjöld voru 327 milljónir og hækkuðu um 6,1 prósent milli ára. Áhugasamir geta fundið frekari upplýsingar um ársfjórðungsuppgjörið hér. Ársreikningur Sýnar sýnir að félagið tapaði 634 milljónum króna. Umbreytingarár Herdís Dröfn Fjeldsted, forstjóri Sýnar, segir í yfirlýsingu að árið 2025 hafi verið umbreytingarár hjá Sýn og það hafi markað tímamót hjá félaginu. Stefnumótandi ákvarðanir sem renni styrkari stoðum undir reksturinn og muni móta fyrirtækið til lengri tíma hafi verið teknar. „Ráðist var í umfangsmikla endurmörkun þar sem vörumerkin Stöð 2 og Vodafone sameinuðust undir merkjum Sýnar. Endurmörkunin vakti mikla athygli á markaði og jókst vörumerkjavitund almennings hratt ásamt því að Sýn var tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið. Nýtt og einfaldara vöruframboð, þar sem fjarskipti og sjónvarp eru vöndluð saman, fékk góðar viðtökur á markaði. Heimatengingum fjölgaði um 7 prósent á milli ára og hafa aldrei fleiri verið með farsímaáskrift hjá Sýn,“ segir Herdís. Þá hafi verið kláruð sala fjarskiptainnviða til Sendafélagsins eftir mikla undirbúningsvinnu í samstarfi við Nova og að dótturfélögin Njála, Já og Endor hafi verið sameinuð inn í rekstur Sýnar. „Mikilvægum áfanga var náð þegar við kláruðum innleiðingu á nýjum ferlum og fjárhagskerfi sem gerðu okkur kleift að ráðast í ítarlegri starfsþáttagreiningu. Það veitir okkur skýrari sýn á afkomu allra rekstrareininga félagsins og leggur grunn að markvissum aðgerðum í hagræðingu og endurskipulagningu. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður sýna niðurstöður fjórða ársfjórðungs að aðgerðir ársins eru að skila árangri. Við stöndum því á traustari grunni og förum inn í næsta tímabil með einfaldari rekstrargrunn, skýrari stefnu og aukna getu til að skapa sjálfbæran og arðbæran vöxt.“ Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Uppgjör og ársreikningar Fjarskipti Fjölmiðlar Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira