Handbolti

Elín Klara fékk tíu af tíu mögu­legum fyrir frammi­stöðuna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elín Klara Þorkelsdóttir og Dana Björg Guðmundsdóttir fagna einu marka íslenska liðsins í sigrinum á Svartfjallalandi í gær.
Elín Klara Þorkelsdóttir og Dana Björg Guðmundsdóttir fagna einu marka íslenska liðsins í sigrinum á Svartfjallalandi í gær. Vísir/Hulda Margrét

Elín Klara Þorkelsdóttir átti stórkostlegan leik í gærkvöldi þegar íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann lífsnauðsynlegan en um leið óvæntan sigur á stórliði Svartfjallalands í undankeppni EM 2026.

Íslenska liðið hafði tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í riðlinum og urðu því helst að vinna leikinn á Ásvöllum í gær.

Svartfjallaland átti samt að vera fyrir fram sterkasta lið riðilsins og hafði unnið tvo fyrstu leiki sína með sjö og sex mörkum.

Íslensku stelpurnar sýndu hvað þær eru öflugar en sigurinn kom í höfn ekki síst fyrir stórbrotinn leik hinnar 21 árs gömlu Elínu Klöru.

Elín Klara skoraði tólf mörk úr aðeins sextán skotum í þessum eins marks sigri og níu þeirra komu utan af velli. Hún var með 75 prósent skotnýtingu, gaf þrjár stoðsendingar og fiskaði þrjú víti. HB Statz tók tölfræði í leiknum og samkvæmt einkunnagjöf fékk Elín Klara tíu af tíu mögulegum fyrir frammistöðuna í gærkvöldi.

Elín Klara kom því með beinum hætti að átján mörkum íslenska liðsins í leiknum en Sandra Erlingsdóttir skoraði úr öllum vítunum sem Elín Klara fiskaði.

Ekkert mark var líklega mikilvægara en þegar hún kom íslenska liðinu tveimur mörkum yfir á lokamínútunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×