Þrjú lið geta orðið deildarmeistarar | ÍR-ingar eygja enn von Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. mars 2026 21:17 Arnór Snær Óskarsson og félagar í Val standa best að vígi í baráttunni um deildarmeistaratitilinn. vísir/anton Næstsíðasta umferð Olís-deildar karla fór fram í kvöld. Þrjú lið eiga möguleika á að verða deildarmeistarar fyrir lokaumferðina og ÍR getur enn bjargað sér frá falli. Þrjú efstu lið deildarinnar, Valur, FH og Haukar, unnu öll sína leiki í kvöld. Valur sigraði HK, 33-26, og hélt þar með toppsæti deildarinnar. Gunnar Róbertsson skoraði átta mörk fyrir Val og Bjarni í Selvindi sex. Björgvin Páll Gústavsson varði sautján skot (41 prósent) í marki Vals sem verður deildarmeistari með sigri á ÍBV í Eyjum í lokaumferð Olís-deildarinnar á fimmtudaginn kemur. Haukur Ingi Hauksson var markahæstur HK-inga með sjö mörk og Sigurður Jefferson Guarino skoraði sex. HK er í 8. sæti deildarinnar, því síðasta sem gefur sæti í úrslitakeppninni. FH gerði góða ferð til Akureyrar og vann KA, 25-30. FH-ingar eru í 2. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Valsmönnum, en KA-menn eru dottnir niður í 5. sætið. Bikarmeistarar Hauka báru sigurorð af Selfossi, 35-28. Þeir eru í 3. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir FH-ingum og tveimur stigum á eftir Valsmönnum. Freyr Aronsson fór á kostum í liði Hauka í kvöld en hann skoraði þrettán mörk og gaf sex stoðsendingar. Hannes Höskuldsson var einu sinni sem oftar markahæstur hjá Selfossi með átta mörk. Selfyssingar eru í 10. sæti deildarinnar og eiga ekki lengur möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Þeir geta heldur ekki endað í neðsta sæti deildarinnar. Bernard Kristján Owusu Darkoh og félagar í ÍR eru ekki búnir að syngja sitt síðasta.vísir/anton ÍR á enn möguleika á að bjarga sér frá falli eftir sigur á Stjörnunni, 30-26, í Skógarselinu. ÍR-ingar eru áfram á botni deildarinnar en nú aðeins einu stigi á eftir Stjörnumönnum sem eru í næstneðsta sætinu. Liðið sem endar þar fer í umspil um að halda sæti sínu í Olís-deildinni. Bernard Kristján Owusu Darkoh skoraði tíu mörk fyrir ÍR sem getur skotist upp fyrir Stjörnuna í lokaumferðinni. ÍR-ingar þurfa að ná betri úrslitum í sínum leik gegn FH-ingum en Stjörnumenn gegn Frömurum. Starri Friðriksson skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna í kvöld en liðið hefur tapað tíu leikjum í röð. Þór vann góðan útisigur á Aftureldingu, 24-26. Þórsarar eru nú aðeins einu stigi á eftir HK-ingum sem eru í 8. sætinu. Til að komast í úrslitakeppnina þarf Þór að leggja KA að velli í grannaslag í lokaumferðinni og treysta á að HK tapi fyrir Haukum á sama tíma. Brynjar Hólm Grétarsson skoraði átta mörk fyrir Þór og Hafþór Már Vignisson sex. Nikola Radovanovic varði fjórtán skot í marki Þórsara (38 prósent). Ihor Kopyshynskyi skoraði sex mörk fyrir Aftureldingu sem er í 6. sæti deildarinnar. Þá lyfti ÍBV sér upp í 4. sætið með sigri á Íslandsmeisturum Fram, 26-27. Kristófer Ísak Bárðarson skoraði sigurmark Eyjamanna en Andri Erlingsson var þeirra markahæstur með fimm mörk. Ívar Logi Styrmisson og Rúnar Kárason, fyrrum leikmenn ÍBV, skoruðu átta mörk hvor fyrir Fram. Meistararnir eru í 7. sæti deildarinnar. Lokaumferð Olís-deildarinnar, 12. mars Stjarnan - Fram HK - Haukar ÍBV - Valur Þór - KA Selfoss - Afturelding FH - ÍR Allir leikirnir hefjast klukkan 19:30 Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Þrjú efstu lið deildarinnar, Valur, FH og Haukar, unnu öll sína leiki í kvöld. Valur sigraði HK, 33-26, og hélt þar með toppsæti deildarinnar. Gunnar Róbertsson skoraði átta mörk fyrir Val og Bjarni í Selvindi sex. Björgvin Páll Gústavsson varði sautján skot (41 prósent) í marki Vals sem verður deildarmeistari með sigri á ÍBV í Eyjum í lokaumferð Olís-deildarinnar á fimmtudaginn kemur. Haukur Ingi Hauksson var markahæstur HK-inga með sjö mörk og Sigurður Jefferson Guarino skoraði sex. HK er í 8. sæti deildarinnar, því síðasta sem gefur sæti í úrslitakeppninni. FH gerði góða ferð til Akureyrar og vann KA, 25-30. FH-ingar eru í 2. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir Valsmönnum, en KA-menn eru dottnir niður í 5. sætið. Bikarmeistarar Hauka báru sigurorð af Selfossi, 35-28. Þeir eru í 3. sæti deildarinnar, einu stigi á eftir FH-ingum og tveimur stigum á eftir Valsmönnum. Freyr Aronsson fór á kostum í liði Hauka í kvöld en hann skoraði þrettán mörk og gaf sex stoðsendingar. Hannes Höskuldsson var einu sinni sem oftar markahæstur hjá Selfossi með átta mörk. Selfyssingar eru í 10. sæti deildarinnar og eiga ekki lengur möguleika á að komast í úrslitakeppnina. Þeir geta heldur ekki endað í neðsta sæti deildarinnar. Bernard Kristján Owusu Darkoh og félagar í ÍR eru ekki búnir að syngja sitt síðasta.vísir/anton ÍR á enn möguleika á að bjarga sér frá falli eftir sigur á Stjörnunni, 30-26, í Skógarselinu. ÍR-ingar eru áfram á botni deildarinnar en nú aðeins einu stigi á eftir Stjörnumönnum sem eru í næstneðsta sætinu. Liðið sem endar þar fer í umspil um að halda sæti sínu í Olís-deildinni. Bernard Kristján Owusu Darkoh skoraði tíu mörk fyrir ÍR sem getur skotist upp fyrir Stjörnuna í lokaumferðinni. ÍR-ingar þurfa að ná betri úrslitum í sínum leik gegn FH-ingum en Stjörnumenn gegn Frömurum. Starri Friðriksson skoraði átta mörk fyrir Stjörnuna í kvöld en liðið hefur tapað tíu leikjum í röð. Þór vann góðan útisigur á Aftureldingu, 24-26. Þórsarar eru nú aðeins einu stigi á eftir HK-ingum sem eru í 8. sætinu. Til að komast í úrslitakeppnina þarf Þór að leggja KA að velli í grannaslag í lokaumferðinni og treysta á að HK tapi fyrir Haukum á sama tíma. Brynjar Hólm Grétarsson skoraði átta mörk fyrir Þór og Hafþór Már Vignisson sex. Nikola Radovanovic varði fjórtán skot í marki Þórsara (38 prósent). Ihor Kopyshynskyi skoraði sex mörk fyrir Aftureldingu sem er í 6. sæti deildarinnar. Þá lyfti ÍBV sér upp í 4. sætið með sigri á Íslandsmeisturum Fram, 26-27. Kristófer Ísak Bárðarson skoraði sigurmark Eyjamanna en Andri Erlingsson var þeirra markahæstur með fimm mörk. Ívar Logi Styrmisson og Rúnar Kárason, fyrrum leikmenn ÍBV, skoruðu átta mörk hvor fyrir Fram. Meistararnir eru í 7. sæti deildarinnar. Lokaumferð Olís-deildarinnar, 12. mars Stjarnan - Fram HK - Haukar ÍBV - Valur Þór - KA Selfoss - Afturelding FH - ÍR Allir leikirnir hefjast klukkan 19:30
Stjarnan - Fram HK - Haukar ÍBV - Valur Þór - KA Selfoss - Afturelding FH - ÍR Allir leikirnir hefjast klukkan 19:30
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira