Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Sindri Sverrisson skrifar 12. mars 2026 14:01 Valsmenn þurfa sigur í kvöld til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. vísir/Anton Valur, FH og Haukar berjast um deildarmeistaratitilinn í Olís-deild karla í handbolta, þegar lokaumferðin fer fram í kvöld. Einnig er hörð barátta um heimavallarrétt, sæti í úrslitakeppninni og um að forðast fall.
Sú ótrúlega staða er uppi að ekkert lið í deildinni siglir lygnan sjó, ef svo má segja. Öll hafa að einhverju að keppa í lokaumferðinni í kvöld og þar á meðal er barist um sjálfan deildarmeistaratitilinn. Valsmenn eru með örlögin í eigin höndum en eiga krefjandi leik gegn ÍBV í Vestmannaeyjum. FH treystir á hjálp frá Eyjamönnum en þarf þá líka að vinna ÍR sem verður að vinna til að forðast fall. Aðeins neðsta lið deildarinnar fellur beint niður í Grill 66-deildina en næstneðsta liðið fer í umspil. Átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina þar sem fjögur efstu liðin hafa heimavallarrétt í fyrstu umferð. Leikir kvöldsins og staðan í Olís-deild karla.Vísir Hafa ber í huga að verði lið jöfn að stigum þá ráða innbyrðis úrslit því hvort þeirra endar ofar. Svona eru möguleikarnir hjá hverju liði fyrir sig, fyrir kvöldið: Valur: Deildarmeistari með sigri gegn ÍBV í Eyjum. Einnig deildarmeistari með jafntefli ef FH vinnur ekki +6 marka sigur, því Valur og FH eru jöfn í innbyrðis úrslitum. Tapi Valur þarf liðið að treysta á að FH og Haukar tapi sínum leikjum. FH: Tryggir sér 2. sæti með sigri gegn ÍR en getur einnig náð 1. sæti ef Valur vinnur ekki í Eyjum. Ef Valur gerir jafntefli þarf FH +6 marka sigur til að komast upp fyrir Val. FH getur misst Hauka upp fyrir sig með tapi. Haukar: Öruggir með að minnsta kosti 3. sæti. Komast upp fyrir FH með sigri ef FH vinnur ekki ÍR. Deildarmeistarar með sigri aðeins ef Haukar og FH tapa bæði. ÍBV: Tryggir sér 4. sæti og heimavallarrétt með jafntefli eða sigri gegn Val. Endar í 5. sæti og missir heimavallarréttinn til KA með tapi, þá og því aðeins að KA-menn vinni Þór. KA: Gæti endað í 4., 5. eða 6. sæti. Þarf sigur gegn Þór og treysta á að ÍBV tapi, til að ná 4. sæti og eiga þá heimavallarréttinn gegn ÍBV í 8-liða úrslitum. Gæti misst Aftureldingu upp fyrir sig með tapi eða jafntefli. Afturelding: Kemst upp fyrir KA í 5. sæti með sigri, ef KA vinnur ekki Þór. Getur ekki náð ÍBV vegna innbyrðis úrslita. Fram: Endar í 7. sæti, eða þá í besta falli í 6. sæti vinni liðið Stjörnuna og Afturelding tapi gegn Selfossi. HK: Situr í 8. sæti, síðasta sætinu inn í úrslitakeppni, og tryggir sér það með sigri gegn Haukum. Ef HK tapar getur Þór stolið 8. sætinu með sigri gegn KA. Þór: Getur ekki fallið en þarf sigur gegn KA og tap hjá HK til að komast í 8. sæti og í úrslitakeppnina. Selfoss: Getur ekki endað neðst og ekki komist ofar. Ef Selfoss tapar og Stjarnan vinnur endar Selfoss næstneðst og þarf að fara í fallumspilið. Stjarnan: Tryggir sæti sitt í deildinni með sigri í kvöld ef Selfoss vinnur ekki Aftureldingu. Endar annars næstneðst nema að ÍR vinni FH og Stjarnan tapi gegn Fram. ÍR: Þarf að vinna FH og treysta á að Stjarnan vinni ekki Fram. Annars falla ÍR-ingar.
Olís-deild karla Mest lesið Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti FIFA rukkar tíu þúsund krónur fyrir að mæta á blaðamannafund Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti „Mig dreymdi þetta“ Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira