Snædís stigin á svið í Bocuse d´Or Lovísa Arnardóttir skrifar 16. mars 2026 10:07 Marlís og Snædís tilbúnar í keppni. Aðsend Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, fyrrverandi þjálfari kokkalandsliðsins, stígur á svið klukkan tíu að íslenskum tíma og keppir í stærstu kokkakeppni Evrópu, Bocuse d´Or í Marseilla í Frakklandi. Snædís er fyrsta konan sem keppir fyrir Íslands hönd og er þema hennar í keppninni Fjallkonan.
Snædís og aðstoðarkona hennar, Marlís Jóna Þórunn Karlsdóttir, eru búnar að vera að síðan snemma í morgun að undirbúa. Þær byrja á því að gera aioli-sósu og kynna fyrir dómurum og eiga svo að skila fyrsta diski, Miðjarðarhafsdisknum, klukkan 12.40 að íslenskum tíma og 13.15 skila þær svo platta. Eftir það fá þær 30 mínútur til að þrífa. Hægt er að fylgjast með Snædísi í beinni hér á vef keppninnar. Þá er einnig hægt að fylgjast með uppfærslu á Instagram-síðu teymisins. View this post on Instagram A post shared by Thorir Erlingsson (@chefthorir) Á vef veitingageirans segir um réttina að í því fyrra þurfi keppendur að útbúa fjórtán diska þar sem fjögur hráefni eru í aðalhlutverki. Það eru smokkfiskur, nautalund af Camargue-nauti, hvítlaukur og ólífuolía. Í hinu verkefninu, sem borið er fram á stóru fati, þurfa keppendur að útbúa fjórtán skammta þar sem rauður gurnard-fiskur, litlar fjólubláar ætiþistlar, kjúklingabaunir og ígulker eru lykilhráefni. Langþráður draumur Rætt var við Snædísi á Vísi um helgina um keppnina en hún sagði þátttöku langþráðan draum. Þar sagði hún þemað allsráðandi í seinni disknum þar sem hún notar silfurvírvirki sem notað er í íslenskum þjóðbúningi kvenna. Niðurstaðan liggur svo fyrir síðdegis í dag, á milli 17 og 18. Þá verður greint frá því hvaða tíu lönd komast áfram í aðalkeppnina í Lyon í janúar á næsta ári.
Matur Frakkland Kokkalandsliðið Tengdar fréttir Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Íslenskur kokkur stefnir á fyrsta sæti í stærstu kokkakeppni heims sem fer fram í Frakklandi árið 2027. Undirbúningurinn hefst strax í dag þó að eitt og hálft ár sé til stefnu. Fréttastofa kíkti í heimsókn í eldhús kappans. 27. júní 2025 22:41 Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Stjörnukokkurinn Sindri Guðbrandur Sigurðsson er búin að vinna nær öll verðlaun sem hægt er í matreiðsluheiminum á Íslandi, en markmið hans hefur frá upphafi ferilsins verið þátttaka í erfiðustu kokkakeppni heims, Bocuse d´Or í Frakklandi. 13. maí 2025 12:30 Hreppti áttunda sæti og tryggði sér þátttökurétt Sindri Sigurðsson náði áttunda sætinu í Evrópuforkeppni Bocuse d'Or matreiðslukeppninnar í Þrándheimi í vikunni. Árangur Sindra veitir honum þátttökurétt í aðalkeppninni sem haldin verður í Lyon í Frakklandi í janúar 2025. Bocuse d'Or er ein virtasta matreiðslukeppni heims. 20. mars 2024 22:15 Mest lesið Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Lífið Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Lífið David Hockney er látinn Menning Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Bíó og sjónvarp Glansandi hár er nýi lúxusinn – af hverju eru allir að tala um „Gloss Hair“? Lífið samstarf Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Lífið Fleiri fréttir Brennivín hlaut gullverðlaun Sjá meira
Stefnir á sigur í stærstu kokkakeppni heims Íslenskur kokkur stefnir á fyrsta sæti í stærstu kokkakeppni heims sem fer fram í Frakklandi árið 2027. Undirbúningurinn hefst strax í dag þó að eitt og hálft ár sé til stefnu. Fréttastofa kíkti í heimsókn í eldhús kappans. 27. júní 2025 22:41
Íslendingarnir gleymdu mikilvægu hráefni á lokadeginum Stjörnukokkurinn Sindri Guðbrandur Sigurðsson er búin að vinna nær öll verðlaun sem hægt er í matreiðsluheiminum á Íslandi, en markmið hans hefur frá upphafi ferilsins verið þátttaka í erfiðustu kokkakeppni heims, Bocuse d´Or í Frakklandi. 13. maí 2025 12:30
Hreppti áttunda sæti og tryggði sér þátttökurétt Sindri Sigurðsson náði áttunda sætinu í Evrópuforkeppni Bocuse d'Or matreiðslukeppninnar í Þrándheimi í vikunni. Árangur Sindra veitir honum þátttökurétt í aðalkeppninni sem haldin verður í Lyon í Frakklandi í janúar 2025. Bocuse d'Or er ein virtasta matreiðslukeppni heims. 20. mars 2024 22:15