„Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Magnús Jochum Pálsson skrifar 17. mars 2026 10:26 Laufey fyllti Kórinn tvívegis um helgina og heillaði Íslendinga upp úr skónum. Stórstjarnan Laufey Lín Jónsdóttir fyllti Kórinn tvívegis með stórkostlegum tónleikum um helgina á síðasta stoppinu á tónleikaferðalagi sínu um Evrópu. Hún segir það sannan heiður að fá að spila á Íslandi, draumalandi sínu og vildi óska þess að hún gæti sagt yngri Laufeyju frá helginni.
Laufey gaf út þriðju plötu sína í fullri lengd, A Matter of Time, í ágúst síðastliðnum og hélt svo af stað í tónleikaferðlag um heiminn, fyrst mánaðarlangan túr um Bandaríkin síðasta haust og svo Evróputúr núna í vor áður en heldur til Asíu í maí. Lokað var fyrir umferð í Kórahverfinu um helgina, Kórnum umbreytt í Laufeyjarveröld og spenntir gestir ferjaðir í strætisvögnum frá Smáralindinni. Rísandi stjarnan Elín Hall hitaði upp áður en stórstjarnan steig á svið og töfraði áhorfendur upp úr skónum. „Laufey er kannski ekki að endurvekja djassinn í sinni hreinustu mynd, en hún er að gera eitthvað sem gæti reynst miklu áhrifameira: að gera heilan hljóðheim aftur spennandi fyrir nýja kynslóð. Tónleikarnir í Kórnum voru glæsilegt sjónarspil, músíkalskt afburðaverk og á köflum beinlínis heillandi,“ skrifaði Jónas Sen í fjögurra og hálfs stjörnu dómi sínum um tónleikana. Ekki nóg með að áhorfendur fengju að hlusta á stórkostleg lög af nýju plötunni heldur lumaði Laufey nokkrum óvæntum bónuslögum að í lokin. Þrisvar sinnum sagði Laufey að komið væri að lokalaginu og í hvert skipti sem kom í ljós að hún væri að plata fögnuðu áhorfendur. Fyrst tók hún lagið „Second Best“ af Bewitched, síðan nýju smáskífuna „How I Get“ og loks söng hún á íslensku áhorfendum til mikillar gleði. Lokalagið var „Draumalandið“ eftir Sigfús Einarsson eftir texta Guðmundar Magnússonar sem Laufey sagði vera eftirlætis lag foreldra sinna og lag sem hún hlustaði á þegar hún væri erlendis og saknaði Íslands. Fallegur endir á stórkostlegum tónleikum. „Ég gæti ekki gert þetta án ykkar“ Laufey hefur ekki farið í nein viðtöl hérlendis um tónleikana en tjáði sig þó um tónleikana á samfélagsmiðlum í gær og sagði þar: „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland.“ Laufey spilaði á selló, píanó og gítar á tónleikunum. „Það er sannur heiður að fá að spila fyrir ykkur. Takk fyrir að fylla Kórinn tvisvar!! Takk fyrir að stíga inn í heiminn minn og fyrir allan stuðninginn! Ég gæti ekki gert þetta án ykkar ❤️ Ég óska þess að ég gæti sagt yngri Laufeyju frá þessari helgi!! Hún hefði ekki trúað þessu!! ✨“ skrifaði hún jafnframt. Þá fylgdi texti með á ensku fyrir erlenda aðdáendur hennar þar sem hún sagðist hafa fengið að spila á tveimur uppseldum tónleikum í heimalandi sínu. „Ég hélt tónleikana sem ég hefði þurft að sjá þegar ég ólst upp sem barn milli menningarheima og var að reyna að finna minn stað í heiminum. Ég setti alla mína æskudrauma inn í þessa tónleika og gæti ekki verið stoltari af þeim,“ skrifaði hún.
Tónleikar á Íslandi Menning Laufey Lín Tengdar fréttir Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Hin tólf ára gamla Sóley Stella Ásbergsdóttir átti ógleymanlegt augnablik með Laufey í Kórnum um helgina þegar söngkonan gaf henni og sérsaumaðri tösku hennar sérstakan gaum fyrir framan þúsundir tónleikagesta og tileinkaði henni lag. Sóley segist aldrei munu gleyma augnablikinu. 16. mars 2026 20:57 Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Skipuleggjendur risatónleika Laufeyjar útveguðu pylsustand baksviðs fyrir söngkonuna og teymið hennar en margir af erlendum samstarfsmönnum hennar voru afar spenntir fyrir því að smakka íslenska pulsu. 16. mars 2026 18:47 Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Laufey Lín er ekki bara ein stærsta tónlistarstjarna heims heldur hefur hún sömuleiðis haslað sér völl sem mikil tískudrottning sem veitir milljónum innblástur í klæðaburði. Á tónleikunum um helgina skipti hún fjórum sinnum um lúkk sem var hvert öðru glæsilegra og allt sérhannað á hana fyrir tilefnið. 16. mars 2026 13:55 Mest lesið „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Tíska og hönnun „Jú, ég sá einhverja fræga“ Lífið Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Lífið Hugljúft en stutt gaman Gagnrýni Klæddist fimm kílóum af mannahárum Tíska og hönnun Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun Betra að setja upp sólgleraugu inni á kvöldin en úti í morgunsólinni Lífið „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Tónlist Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Lífið Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun Fleiri fréttir „Takk fyrir mig Ísland, mitt draumaland“ Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Boy George keppir fyrir San Marínó Hollt að sinna húsverkum og fá engin hrós Opna Laufeyjarverslun fyrir tónleikana „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Þekktasta söngleikjalag allra tíma í nýjum búning Ástin það besta í heiminum Lagið minnti á sig í sambandsslitunum Einn vinsælasti íslenski tónlistarmaðurinn óþekktur hérlendis Laufey segir skilið við Wasserman í skugga Epstein-skandals Sturluð vika hjá Kristmundi Axel Úr barnaskemmtunum á klúbbinn Í fyrsta sinn á föstu á Valentínusardaginn 52 ára Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Segir bless og sjáumst aldrei við Wasserman Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Sjá meira
Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Hin tólf ára gamla Sóley Stella Ásbergsdóttir átti ógleymanlegt augnablik með Laufey í Kórnum um helgina þegar söngkonan gaf henni og sérsaumaðri tösku hennar sérstakan gaum fyrir framan þúsundir tónleikagesta og tileinkaði henni lag. Sóley segist aldrei munu gleyma augnablikinu. 16. mars 2026 20:57
Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Skipuleggjendur risatónleika Laufeyjar útveguðu pylsustand baksviðs fyrir söngkonuna og teymið hennar en margir af erlendum samstarfsmönnum hennar voru afar spenntir fyrir því að smakka íslenska pulsu. 16. mars 2026 18:47
Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Laufey Lín er ekki bara ein stærsta tónlistarstjarna heims heldur hefur hún sömuleiðis haslað sér völl sem mikil tískudrottning sem veitir milljónum innblástur í klæðaburði. Á tónleikunum um helgina skipti hún fjórum sinnum um lúkk sem var hvert öðru glæsilegra og allt sérhannað á hana fyrir tilefnið. 16. mars 2026 13:55