Alfreð með skýrt svar: „Þeir verða að ráða framhaldinu“ Sindri Sverrisson skrifar 18. mars 2026 08:36 Alfreð Gíslason er með sterk spil á hendi í samningaviðræðum, eftir silfrið á EM í janúar. Getty/Sina Schuldt Alfreð Gíslason hefur engan áhuga á að setjast í helgan stein eftir næsta heimsmeistaramót í handbolta, þar sem lærisveinar hans í þýska landsliðinu verða á heimavelli í byrjun næsta árs.
Þýskir miðlar spurðu Alfreð út í framtíðina í aðdraganda vináttulandsleikjanna við Afríkumeistara Egyptalands á morgun og sunnudag. Alfreð hefur stýrt Þýskalandi frá árinu 2020 en samningur hans við þýska handknattleikssambandið rennur út eftir HM sem lýkur 31. janúar á næsta ári. Alfreð segir að boltinn sé nú hjá forkólfum sambandsins varðandi framhaldið. „Ég hef aldrei farið leynt með það að ég vilji ekki hætta í handbolta strax eftir heimsmeistaramótið og myndi gjarnan vilja halda áfram að vinna með þessu liði,“ sagði Alfreð. „Ég hef alltaf gefið til kynna að samningur minn renni út eftir HM og þeir verði að ákveða framhaldið. Ég mun sætta mig við þá ákvörðun,“ ítrekaði Alfreð. Miðað við árangurinn síðustu ár ætti Alfreð, sem er 66 ára gamall, að vera í sterkri samningsstöðu en hann stýrði Þýskalandi til silfurverðlauna á EM í janúar og einnig til silfurverðlauna á Ólympíuleikunum í París 2024. Í bæði skiptin tapaði liðið gegn Danmörku í úrslitaleik. Í millitíðinni varð Þýskaland í 6. sæti á HM 2025.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira