Lítil prinsessa á leiðinni hjá Sóleyju Smáradóttur Magnús Jochum Pálsson skrifar 25. mars 2026 11:54 Sóley Smára lýkur framhaldsstigi á fiðlu í apríl og á von á stúlku í ágúst. Fiðluleikarinn og upprennandi hljómsveitarstjórnandinn Sóley Lóa Smáradóttir á von á stúlkubarni með kærasta sínum Elvari Mána í ágúst. Faðir Sóleyjar, Gunnar Smári Egilsson, deildi tíðindunum á samfélagsmiðlum í gær.
Sóley er átján ára gömul, fæddist í Tógó 2. apríl 2007, var ættleidd af hjónunum Gunnari Smára og Öldu Lóu Leifsdóttur og hefur tjáð sig opinskátt síðustu ár um rasisma á Íslandi. Sóley lýkur framhaldsstigi á fiðlu í apríl og er upprennandi hljómsveitarstjóri. Sóley hefur nokkrum sinnum tekið þátt í hljómsveitarstjóraakademíu Sinfóníunnar hjá Evu Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóra Sinfóníunnar, og sótt nám í hljómsveitarstjórnun erlendis, bæði í Finnlandi hjá hljómsveitarstjóranum Jorma Panula og í Bandaríkjunum hjá Kenneth Kiesler, prófessor við SMTD í Michigan. Ekki nóg með að ljúka fiðlunámi á næstunni heldur er Sóley neðarlega á lista Vinstrisins fyrir sveitarstjórnarkosningar í borginni vor og deildi síðan sónarmynd á Instagram-hringrás sinni í gær um að lítil prinsessa væri á leiðinni. „Það þarf þorp til að ala upp barn“ „Þetta var nú aldeilis dásamlegur dagur. Sóley, litla barnið, fékk að vita að það er stúlkubarn sem hún gengur með, lítil stúlka sem mun fæðast fyrri hluta ágústmánaðar,“ skrifaði fjölmiðlamaðurinn og tilvonandi afinn Gunnar Smári á Fésbókarsíðu sinni í gær. „Við sem þekkjum Sóley erum auðvitað voða glöð, upplifum að við séum bráðum að fá aðra Sóley, sem er auðvitað ekki alveg rétt. Það kemur alveg sjálfstætt undur út úr þessu.“ Það er stórt ár framundan hjá Sóleyju. Með færslunni setti Gunnar fimm myndir af Sóleyju, sem fóstri, ungabarni, tíu ára gamalli, ungum mótorhjólatöffara með föður sínum og sem tilvonandi móður. „Það þarf þorp til að ala upp barn og ég veit það eru nokkur þorp sem vilja hjálpa Sóleyju við að koma litlu stúlkunni á legg,“ skrifaði Gunnar. En það er skammt stórra högga á milli hjá fjölmiðlamanninum því í morgun greindi hann frá því á hann yrði ekki með viðtöl á Samstöðinni því hann væri kominn aftur á hjartadeild Landspítalans vegna bakslags í lyfjameðferð. „Þá er maður aftur kominn á hjartadeildina, ekkert alvarlegt, bara eitthvert bakslag í lyfjameðferðinni, líkaminn ekki sáttur. Það er því útséð um að ég verði með viðtöl á Samstöðinni fyrir páska,“ skrifaði Gunnar Smári á Facebook í morgun. Gunnar Smári hefur undanfarið glímt við alvarleg veikindi, með blóðtappa í fæti, lungum og hjarta, og fjarvera hans hefur verið tilfinnanleg í dagskrá Samstöðvarinnar. Þar var hann nýbyrjaður að láta að sér kveða aftur en verður úr því sem komið er fjarri góðu gamni fram yfir páska.
Barnalán Tónlist Tímamót Mest lesið Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Lífið Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Lífið The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Lífið Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Lífið Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Lífið Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Lífið Qualley og Antonoff í sundur Lífið Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Lífið Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Menning „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið Fleiri fréttir Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Sjá meira