„Á mjög erfitt með að sjá þetta vera jafn gott og síðasta sumar“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 1. apríl 2026 11:00 Felix Örn Friðriksson hefur verið í lykilhlutverki hjá ÍBV um árabil. vísir/diego Baldur Sigurðsson, sérfræðingur Stúkunnar, segir þjálfarabreytingarnar hjá ÍBV skapa óvissu þegar kemur að því fyrir um gengi liðsins í sumar. Hann á ekki von á því að Eyjamenn leiki sama leik og í fyrra.
ÍBV er spáð ellefta og næstneðsta sæti Bestu deildar karla í árlegri spá íþróttadeildar Vísis og Sýnar. ÍBV kom flestum á óvart á síðasta tímabili og var nálægt því að komast í efri úrslitakeppnina. Eyjamenn enduðu að lokum í 9. sæti. Eftir tímabilið hætti Þorlákur Árnason sem þjálfari ÍBV og við tók Aleksandar Linta. „Stærsta spurningarmerkið fyrir ÍBV eru einmitt þessi þjálfaraskipti. Það er bara algjörlega ómögulegt að segja til um, eins og það er oft erfitt að spá fyrir um hvernig ÍBV kemur undan vetri. Allir spáðu ÍBV bara falli og að þeir myndu falla með afgerandi hætti á síðasta tímabili,“ sagði Baldur er hann var beðinn um rýna í lið ÍBV. Klippa: Besta-spáin 2026 - 11. sæti „Farið inn í þetta tímabil er maður kannski dálítið með sömu tilfinningu. Maður veit ekki alveg hvaða áhrif Linta kemur á ÍBV-liðið. Maður er svona kannski pínulítið með sömu tilfinningu núna en þó með þann varnagla að það voru fullt af strákum og fullt af leikmönnum sem stigu gríðarlega upp þrátt fyrir að hafa misst lykilmenn eins og Oliver [Heiðarsson] og Omar Sowe. Þeir voru lítið með síðasta sumar, alla vega á köflum, og þeir komu sér vel í gegnum það. Þannig að það eru flottir leikmenn þarna sem að hafa núna reynsluna frá efstu deild.“ Vörnin öflug en þarf eitthvað inn í sóknina Baldur telur að hlutskipti ÍBV verði að berjast í neðri hluta deildarinnar og finnst liðið þurfa meiri slagkraft fram á við. „Ég á mjög erfitt með að sjá þetta vera jafn gott og síðasta sumar þar sem þeir voru bara búnir að bjarga sér tiltölulega snemma og voru þannig aldrei í neinni fallhættu. Maður sér þá vera að berjast í neðri helmingnum og verða væntanlega í fallbaráttu,“ sagði Baldur. „Stærsta spurningarmerkið er hvaða áhrif Linta hefur og aðeins minna spurningarmerki, en samt gríðarlega mikilvægt, er hverjir munu skora mörkin. Þeir eru með Liam Daða [Jeffs] og fengu Serba sem við eigum eftir að sjá. Þeir þurfa að fá eitthvað þar inn af því að ég hef trú á þeim og að varnarleikur þeirra verði öflugur.“ ÍBV fær FH í heimsókn í 1. umferð Bestu deildarinnar klukkan 13:00 sunnudaginn 12. apríl.
Besta deild karla ÍBV Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Sló í trérót og þurfti að draga sig úr keppni Golf „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Íslenski boltinn Hættir hjá Nike og tekur óvænt skref Fótbolti Steindi gleymdi klukkunni og teikar aðra keppendur Sport Krefjast tíu milljóna dollara til allra aðildarríkja FIFA Fótbolti JJ Gabriel mættur til Barcelona Enski boltinn Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Enski boltinn Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna Íslenski boltinn Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leikirnir við HK fín æfing fyrir stóru stundina Menn eigi ekki að bugast yfir pressu og ávísun Kraftaverkamaðurinn á Húsavík hættur Stór dagur fyrir Ottesen fjölskylduna „Ég ýtti bara aðeins við honum“ Selfyssingar skoruðu öll mörkin í úrslitaleiknum Uppgjörið:Fram - Víkingur 2-2 | Tvö rauð á teymi Víkinga í dramatísku jafntefli „Töpuðum á réttan hátt” „Fannst á tímabili eins og við gætum spilað í 200 mínútur án þess að skora” „Meira sem að þeir þurfa að hafa áhyggjur af hjá okkur“ Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 4-3 | Bikarþynnka í Vestmannaeyjum Uppgjörið: FH - Stjarnan 1-0 | Halda titilbaráttunni jafnri Myndavélar settar upp eftir skemmdarverkin og allt klárt fyrir risaleik „Keyra á ljósabekkina“ fyrir úrslitaleikinn Skotin flugu milli Bolla og Hjamma FH-stelpur meistarar en KSÍ kom ekki með bikar Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 4-1| Breiðablik kláraði þetta í fyrri hálfleik „Hversu mikil pressa var á honum?“ Sjáum til hvort þetta verði algjör þvæla Seldur frá Keflavík til Sýrlands „Hinna klúbbanna á Íslandi að elta þá“ Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Sjáðu fyrsta mark Gabríels og flugskalla í rangt mark Uppgjörið: Fram - Breiðablik 1-3 | Engin bikarþynnka í Blikum Gabríel: Komnir með Fo... nóg af því að tapa Haukar og Selfoss leika til úrslita Segir skot Dagnýjar á Breiðablik „pínu ósanngjarnt“ „Blikarnir geta sleppt sér lausum“ Sjáðu mörkin: Bomba í slá og inn beint af æfingasvæðinu „Þróunin á Íslandi sorgleg síðan ég var hér síðast“ Sjá meira