Handbolti

Lið Orra kvartar undan Porto: Eitruð og sterk lykt í klefanum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Orri Freyr Þorkelsson fór á kostum í sigri Sporting á Porto á laugardaginn. Leikurinn hefur dregið dilk á eftir sér.
Orri Freyr Þorkelsson fór á kostum í sigri Sporting á Porto á laugardaginn. Leikurinn hefur dregið dilk á eftir sér. getty/Gualter Fatia

Eftir sigurinn á Porto birti handboltalið Sporting harðorða yfirlýsingu þar sem félagið gagnrýndi mótherja sinn harðlega fyrir óíþróttamannslega framkomu og kvartaði sérstaklega yfir ólykt í búningsklefa liðsins.

Orri Freyr Þorkelsson skoraði ellefu mörk þegar Sporting sigraði Porto, 30-33, í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni í portúgalska handboltanum á laugardaginn.

Leikurinn hófst tuttugu mínútum of seint þar sem mikill og ertandi óþefur var í búningsklefa Sporting. Vegna hans þurftu þjálfarinn Richardo Costa og leikmaðurinn Christian Moga aðstoð læknis. Costa stýrði Porto ekki í leiknum á laugardaginn og Moga spilaði ekki með.

Sporting lýsti yfir andstöðu sinni við að leikurinn færi fram en nauðsynleg skilyrði voru fyrir hendi svo hægt væri að flauta til leiks eins og fram kemur í harðorðri yfirlýsingu Sporting sem félagið sendi frá sér í gær.

Í yfirlýsingunni gagnrýnir Sporting framferði Porto og óskar tafarlaust eftir fundi með íþróttamálaráðherra Portúgals. Sporting segir ótækt ef framkoma Porto hefur engar afleiðingar fyrir félagið. Sporting segir að svara þurfi aðgerðunum af fyllstu hörku.

Földu bolta og stálu handklæðum

Samkvæmt yfirlýsingunni reyndi Porto að hafa áhrif á annan dómara leiksins, Fábio Veríssimo, með því að sýna ítrekað myndir af ákvörðunum hans í búningsklefa dómaranna til að freista þess að hafa áhrif á hann.

Þá sakar Sporting boltastráka Porto um að fela ítrekað bolta og keilur bak við auglýsingaskilti og stela handklæðum af markvörðum sínum.

Glæpsamlegt athæfi

Steininn tók hins vegar úr þegar kom að lyktinni í búningsklefa Porto. Í yfirlýsingu félagsins segir að eitruð og sterk lykt hafi haft áhrif á líkamlegt ástand leikmanna liðsins og starfsfólks þess. Það sé ekki bara miður heldur glæpsamlegt.

Sporting segir þessa framkomu Porto ólíðandi. Hún sé endurtekin og óíþróttamannsleg og það beri að refsa fyrir hana.

Þorsteinn Leó Gunnarsson, samherji Orra í íslenska landsliðinu, leikur með Porto og skoraði þrjú mörk í leiknum á laugardaginn.

Næstu leikir Sporting eru gegn pólska liðinu Wisla Plock í umspili um sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leikur liðanna fer fram í Portúgal á fimmtudaginn en sá seinni í Póllandi 9. apríl.

Næsti leikur Porto er ekki fyrr en 11. apríl þegar liðið tekur á móti Stiven Tobar Valencia og félögum í Benfica.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×