Segja hann koma úr efstu deild í Litháen en hann féll úr B-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. apríl 2026 10:33 Myles Veldman er himinlifandi með að vera kominn í Valsbúninginn eins og sést á þessari mynd. @valurfc Valur tilkynnti um komu hins 22 ára gamla hollenska varnarmanns Myles Veldman í gærkvöldi en Valsmenn virðast þó ekki vera með það á hreinu í hvaða deild hann var að spila áður en hann kom á Hlíðarenda.
Myles er sagður vera kraftmikill vinstri fótar leikmaður með bakgrunn úr akademíum í Hollandi. Í frétt á miðlum Vals kemur fram að hann hafi síðast leikið í efstu deild í Litháen. „Með komu hans bætast við leikmannahóp okkar bæði gæði og fagmennska á háu stigi,” segir í fréttinni. Þarna fara Valsmenn ekki alveg með rétt mál því Myles var ekki að spila í efstu deild í Lithán heldur í litháensku B-deildinni með liði Nevėzis. Sú deild heitir I Lyga en efsta deild í landinu heitir Toplyga. Fjórtán sætum neðar en Ísland Efsta deild í Litháen er í 46. sæti í Evrópu samkvæmt styrkleikaröðun hjá Knattspyrnusambandi Evrópu og því mun neðar en íslenska Besta deildin sem er í 32. sæti eða fjórtán sætum ofar. Myles skoraði tvö mörk í fjórtán leikjum með Nevězis sem endaði í næstsíðasta sæti og féll úr B-deildinni. Hann spilaði því með öðru af lélegustu liðunum í B-deildinni. Myles endaði þó að skora tvö mörk í lokaleiknum sem Nevězis vann en náði þó ekki að bjarga sér frá falli. Liðið sem hann spilaði með er því orðið C-deildarlið í dag. Liðið vann aðeins sjö af þrjátíu leikjum og var með -26 mörk í markatölu. Hefur heillað þjálfarateymið „Við erum virkilega ánægð með að fá Myles til Vals. Frá fyrsta degi hefur hann heillað þjálfarateymið, ekki aðeins með tæknilegum gæðum heldur einnig með frábærum karakter. Hann er vinnusamur, mikill fagmaður og fellur fullkomlega að þeirri menningu sem við erum að byggja upp hjá félaginu,” sagði Gareth Owen, tæknistjóri Vals, í viðtali á miðlum félagsins. „Myles mun bæta miklum gæðum við hópinn. Hann er með frábæran vinstri fót sem verður mikilvægt vopn fyrir okkur, bæði í uppspili og í því að skapa færi fram á við. Við hlökkum til að sjá hann í treyju Vals og erum viss um að stuðningsmennirnir okkar munu taka vel á móti honum,” sagði Owen. View this post on Instagram A post shared by Valur FC (@valurfc)
Besta deild karla Valur Mest lesið Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Enski boltinn Vann Littler og fékk 80 milljónir: „Þetta er geðveiki“ Sport „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport 18 ára Hólmar fékk Hrunið og IceSave í andlitið Fótbolti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Enski boltinn Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn Hent úr húsi: „Held hann hafi ekki reynt að sparka í typpið á mér“ Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson Enski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Sjá meira