Óttaðist endalokin fyrir þrettán árum Valur Páll Eiríksson skrifar 2. apríl 2026 11:30 Rúnar Kárason skilur sáttur við langan leikmannaferil. Vísir/Lýður Valberg Rúnar Kárason ákvað fyrir mörgum mánuðum að leikmannaferlinum skyldi ljúka í vor þó tilkynningin hafi ekki orðið opinber fyrr en í gær. Hann kveðst ekki nógu athyglissjúkur fyrir langa kveðju.
Hinn 38 ára gamli Rúnar tilkynnti að ferlinum væri lokið á samfélagsmiðlum í gær. Hann er þó ekki alfarið hættur í sportinu, og verður áfram rekstrarstjóri og þjálfari hjá handknattleiksdeild Fram. „Ég verð áfram hérna sem rekstrarstjóri og þjálfari. Ég sagði það líka við strákana eftir síðasta leikinn að ég ætla ekkert að hverfa. Mér þykir mjög vænt um þennan hóp og vil áfram vinna með honum,“ segir Rúnar og bætir við: „Eina breytingin verður að ég verð ekki skíthræddur á hverjum degi um að slíta eitthvað.“ Ákvörðunin um að hætta hefur í raun legið fyrir um nokkurra mánaða skeið, frá því fyrir áramót. „Ég leyfði þessu bara að malla í rólegheitunum í staðinn fyrir að gefa eitthvað út. Fyrir utan það að ég er ekki nægilega athyglissjúkur til þess að vilja fá einhvern kveðjutúr eða slíkt kjaftæði,“ segir Rúnar léttur. Hélt hann ætti stutt eftir fyrir þrettán árum Kveðjustundin hefur því verið drjúg, þó tilkynningin hafi ekki farið út fyrr en í fyrradag. Margar minningar standa upp úr eftir langan atvinnumannaferil í Þýskalandi og Danmörku, Íslandsmeistaratitla með ÍBV og Fram og hundrað landsleiki. Rúnar hóf ferilinn með Fram áður en hann hélt í atvinnumennsku og lék í fjölda ára með mörgum af bestu liðum heims í Þýskalandi.Mynd/Anton „Maður hefur alveg orðið klökkur inn á milli, sitjandi einn með sjálfum sér í bílnum að hugsa um allt saman. Ég upplifi mig mjög lánsaman að ná 21 ári í meistaraflokki. Ég sleit krossband tvisvar sinnum þegar ég er 24 og 25 ára,“ „Satt best að segja, þegar ég sleit krossband í annað sinn, var ég ekki viss um að ég myndi endast eitthvað. Ég hélt að klukkan mín væri komin langt á veg. Að ég sé enn skytta 38 ára í endalausum hamagangi að spila, ég er gríðarlega stoltur af því og þakklátur að þetta skyldi nú allt saman tolla saman,“ segir Rúnar. Einar eigi mikið í ferlinum Það var þá dýrmætt að vinna tvöfalt með uppeldisfélaginu síðasta vor með Einar Jónsson, þjálfara liðsins, sér við hlið. Rúnar segist eiga Einari mikið að þakka og kveðst þakklátur að hafa geta unnið Íslands- og bikarmeistaratitil með honum síðasta vor. „Hann þjálfar mig í fyrsta sinn þegar ég er 13 ára, árið 2002 held ég. Hann kenndi mér hluti sem ég hefði að ég held aldrei lært sjálfur einn míns liðs. Hann er mikilvægasta persónan á mínum handboltaferli,“ segir Rúnar. Fleira kemur fram í viðtalinu við Rúnar sem má sjá í heild í spilaranum að neðan. Einnig má hlusta á viðtalið í hlaðvarpsspilaranum að ofan, sem og á öllum helstu hlaðvarpsveitum. Klippa: Rúnar gerir upp viðburðarríkan 20 ára feril
Fram Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira