„Tel mig vera rosalegan stemningskarl“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 7. apríl 2026 21:38 Jón Þórarinn Þorsteinsson var heldur betur betri en enginn í marki FH-inga í kvöld. Vísir/Anton Brink Jón Þórarinn Þorsteinsson átti stórleik í marki FH er liðið vann sex marka sigur gegn Haukum í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaeinvígi Olís-deildar karla í handbolta í kvöld, 27-21.
Jón Þórarinn hóf leik á varamannabekk FH í kvöld, en kom inn af miklum krafti eftir að Daníel Freyr Andrésson náði ekki að finna fjölina í ramma FH-inga. Jón varði 13 skot í marki FH og endaði með 50 prósent hlutfallsmarkvörslu. „Þetta var bara þarna síðasta korterið sem við byrjuðum að bæta í. En þetta voru 45 mínútur af alvöru hörku og við vorum undir alveg í smá tíma. Þetta var bara harkan sem tók þetta í dag,“ sagði Jón í viðtali eftir leik. FH-ingar skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins í kvöld, en átta af næstu tíu mörkum leiksins voru Hauka. Eftir það var stál í stál nánast allan leikinn, eða alveg þar til FH-ingar sigu fram úr í lokin. „Ég vil segja að þetta hafi verið vörnin, sérstaklega hérna í lokin. Við þurftum aðeins að slípa okkur saman Vörnin var fín í fyrri hálfleik, en hún small rosalega vel í seinni hálfleik. Síðan byrjum við líka að koma í alvöru árásir og þetta endaði bara mjög vel.“ Þá segist hann kunna vel við sig í leik sem þessum, þar sem allt er undir í Hafnarfjarðarslag. „Þetta er auðvitað bara frábært og geggjuð stemning. Ég tel mig vera rosalegan stemningskarl og það er alltaf gaman að fagna upp í stúku. Ég bara elska aðdáendur og sérstaklega þessa. Þetta er búið að vera frábær skemmtun og ég ætla bara að vona að það komi sem flestir á leikinn á föstudaginn þar sem við ætlum að reyna að halda þessu áfram og bæta aðeins meira í.“ En hvað þurfa FH-ingar að gera til að halda góðu gengi áfram á föstudaginn? „Við þurfum að taka góða endurheimt núna og ná góðum æfingum fyrir næsta leik. Svo þurfum við bara að vera tilbúnir því þetta var bara leikur eitt og það er ennþá slatti eftir af þessu,“ sagði Jón að lokum.
Olís-deild karla FH Haukar Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira