Gylfi Þór klár í að byrja gegn Breiðabliki í kvöld Aron Guðmundsson skrifar 10. apríl 2026 11:27 Gylfi Þór Sigurðsson er leikfær. Gylfi Þór Sigurðsson er klár í slaginn með Víkingi Reykjavík sem mætir Breiðabliki í opnunarleik Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld.
Þetta staðfestir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings Reyjavíkur í samtali við Vísi. Gylfi fór meiddur af velli gegn Fram á dögunum í Mjólkurbikarnum og var óttast um að hann yrði ekki til taks fyrir Víkinga í stórleik kvöldsins. En betur fór en á horfðist og er Gylfi nú klár í að taka þátt í stórleik kvöldsins þar sem Víkingar hefja titilvörn sína. Niðurstöður úr myndatöku sem Gylfi fór í vegna meiðslanna fólu í sér jákvæðari fréttir en menn bjuggust við. Hann tók þátt í æfingu með Víkingum í gær. „Við vorum að hafa áhyggjur af því hvort þetta væri tognun hjá honum en svo er ekki. Hann er klár í að taka þátt í leiknum í dag.“ Það er ekkert því til fyrirstöðu að hann byrji leikinn í kvöld? „Nei,“ var stutt og hnitmiðað svar Sölva Geirs. Víkingar eru ríkjandi Íslandsmeistarar og mæta í kvöld liðinu sem þeir hafa verið að berjast við undanfarin ár á toppi Bestu deildarinnar. Gylfi Þór vann sinn fyrsta landstitil á ferlinum á síðasta tímabili með Víkingum og segir Sölvi að það hafi aðeins bætt á hungrið hjá honum að sækja annan titil í safnið. „Við vitum öll hvað býr í Gylfa Þór. Hversu öflugur leikmaður hann er. Það er mjög mikilvægt að Gylfi sé klár fyrir okkur. Hann hefur sýnt það núna og í fyrra hversu mikilvægur leikmaður hann er fyrir okkur. Það sem mér finnst mest skemmtilegast að sjá er að þótt hann hafi loksins unnið sinn fyrsta landstitil í fyrra þá er eins og það hafi bara bætt á hungrið hjá honum, að vinna þetta aftur. Hann hefur stigið upp, það er gaman að sjá svona reynslumikinn leikmann, sem hefur gert þetta mikið í fótboltanum, hafa enn þetta hungur til að gera betur. Þetta gefur gott fordæmi fyrir aðra leikmenn innan okkar liðs.“ Stórleikur Víkings Reykjavíkur og Breiðabliks í fyrstu umferð Bestu deildar karla í fótbolta hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland. Fyrsta umferð Bestu deildarinnar á Sýn Sport Föstudagur 10. apríl 19:15 Víkingur R. - Breiðablik (Sýn Sport Ísland) Sunnudagur 12. apríl 13:00 ÍBV - FH (Sýn Sport Ísland) 16:45 Besta messan (Sýn Sport Ísland) 17:00 KR - Keflavík (Sýn Sport Ísland 2) 17:00 Valur - Þór (Sýn Sport Ísland 4) 17:00 KA - Stjarnan (Sýn Sport Ísland 5) 19:30 Fram - ÍA (Sýn Sport Ísland) 21:35 Stúkan (Sýn Sport Ísland)
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Breiðablik Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira