Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Freyja Þórisdóttir skrifar 11. apríl 2026 15:31 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra smellir sjálfu af sér og hinum konunum sem stjórna landinu, þeim Höllu Tómasdóttur forseta, Heiðu Björgu Hilmisdóttur borgarstjóra og Guðrúnu Karls Helgudóttur biskup Íslands. Myndina tók Kjartan Þorbjörnsson, Golli, fyrir Heimildina. Mynd/Golli Í dag voru veitt verðlaun fyrir fréttamynd ársins og mynd ársins en ljósmyndarinn Kjartan Þorbjörnsson, Golli, vann í báðum flokkum. Ólíkt því sem tíðkast var myndaröð valin í flokknum mynd ársins. Sýningin Myndir ársins var jafnframt opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í dag en fólk getur gert sér ferð á hana til 17. maí. Á sýningunni eru myndirnar í sex flokkum: fréttamyndir, daglegt líf, íþróttamyndir, portrettmyndir, umhverfismyndir, og myndaraðir. Í ár veitti dómnefndin verðlaun fyrir bestu fréttamynd ársins og fyrir mynd ársins 2025, en að þessu sinni varð myndröð fyrir valinu í þeim flokki. „Sigurvegari í flokknum mynd ársins er einstakt rannsóknarverk sem minnir okkur á að á bak við skrifræðiskerfi samfélagsins leynast alltaf raunveruleg mannslíf,“ sagði í rökstuðningi dómara. Hann er hér í heild sinni: „Í sífellt flóknari heimi, þar sem fréttirnar buna áfram og stjórnmálin snúast hraðar og hraðar, eru sinnuleysi og kaldhæðni alltaf í nánd að leita færis. Það getur virst ómögulegt að skilja heiminn. Áreitið er stöðugt. Það er svo auðvelt að gefast upp. En saga Oscars gerir það ómögulegt að vera sama. Alþjóðastjórnmál birtast hér í lífi einnar ungrar manneskju. Við erum nærri þegar örlög hans eru mótuð og ráðin. Stefna í málefnum útlendinga, sem ætlað er að vernda Ísland, mætir skyndilega veruleikanum – þar sem samfélag tekur höndum saman í verndarskyni. Til að vernda Oscar. Í sundurleitum heimi er dómnefndin ekki að verðlauna eina glæsilega mynd, heldur rannsóknarmyndaröð. Samkenndin og nærveran í myndunum hittir okkur í hjartastað og dregur okkur inn í ferðalag sem vekur opinskátt spurningar um grunngildi Íslands og framtíðina sem við deilum saman.“ Verðlaunaafhendingin fór fram klukkan þrjú í dag í Ljósmyndasafni Reykjavíkur en alls voru átján ljósmyndarar sem sendu inn myndir til dómnefndar. Mátti hver eingöngu senda inn sextíu og sex myndir en loks voru hundrað og fjórar myndir frá sextán blaðaljósmyndurum valdar til sýningar. Fréttamynd ársins sýnir sögulega stund Í rökstuðningi dómnefndar segir að stundin sem hlaut fréttamynd ársins 2025 hafi átt sér langan aðdraganda. Rökstuðningurinn er hér í heild sinni: „Margir þurfa tíma til að átta sig á sögunni, þurfa baksýnisspegil til að átta sig á því sögulega eða umbreytandi andartaki sem átti sér stað fyrir framan þá. En framúrskarandi ljósmyndari er öðruvísi. Hann sér andartakið fyrir. Berst til að koma sér í rétta stöðu. Og bíður þolinmóður þangað til stundin rennur upp og rétt er að smella af. Þessi sögulega stund, sem hlaut verðlaunin Fréttamynd ársins 2025, á sér langan aðdraganda. Myndin sýnir fyrstu stundina í sögu Íslands þegar fjórar helstu valdastöðurnar voru allar í höndum kvenna: Halla Tómasdóttir forseti, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Guðrún Karls Helgudóttir biskup sitja fyrir á sjálfsmynd sem virðist tekin í hita augnabliksins. Við þekkjum öll sjálfuna, hversdagslega athöfn sem endurtekur sig endalaust – óformleg, næstum kjánaleg – en þessar fjórar konur virðast engu að síður vera meðvitaðar um það afar táknræna og sögulega andartak sem þær eru hluti af. Að bak við brosið séu þær þarna sem fulltrúar harðrar aldalangrar baráttu fyrir jafnrétti kvenna sem er hvergi lokið.“ Blaðaljósmyndarafélag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaðamannafélags Íslands. Sýningin Myndir ársins hefur verið haldin síðan 1979. Stjórn Blaðaljósmyndarafélags Íslands í ár skipa Kjartan Þorbjörnsson (formaður), Anton Brink, Eyþór Árnason og Ragnhildur Aðalsteinsdóttir. Samhliða sýningunni kemur út bók með öllum myndum sýningarinnar sem er til sölu í safnbúð Ljósmyndasafns Reykjavíkur. Dómnefndarstörf fóru fram snemma í febrúar en í ár skipuðu óháðu dómnefndina þau Árni Torfason, Arnaldur Halldórsson, Heiðdís Guðbjörg Gunnarsdóttir og Mads Nissen, þrefaldur World Press Photo vinningshafi sem var formaður dómnefndar. Myndaröðin tileinkuð Oscari Oscar Boganegra Florez kom til landsins frá Kólumbíu. Faðir hans hafi komið til landisins áður og sótt um hæli. Hann sendi eftir syni sínum til að styrkja umsókn sína en þegar það gekk ekki gekk hann í skrokk á Oscari og skildi hann eftir. Oscar fékk inni hjá hjónunum Svavari og Sonju sem tóku hann að sér og börðust fyrir því að halda honum á landinu, sóttu hann til Kólumbíu þegar honum var brottvísað og hann skilinn einn eftir. Eftir langa baráttu veitti Alþingi Oscari íslenskan ríkisborgararétt sumarið 2025. Myndaröðin sem bar sigur af hólmi er hér öll fyrir neðan. Straumhvörf urðu í maí þegar faðir Oscars gekk í skrokk á honum í anddyri Hótel Hrauns þar sem þeir bjuggu saman.Mynd/Golli Svavar og Sonja stóðu fyrir mótmælum á Austurvelli til að mótmæla brottflutningi Oscars. „Hundruðir manns mættu á mótmælin okkar við Alþingishúsið. Fólk sem að við þekkjum ekki neitt og höfum aldrei séð áður,“ lýsir Svavar þakklátur.Mynd/Golli „Mig langar bara að vera strákur, ekki með áhyggjur af því hvort einhver sé að fara að taka mig.“ segir Oscar sem hér hittir kærustu sína eftir fótboltaæfingu með vinum sínum.Mynd/Golli Um leið og Oscar fékk fyrstu synjunina í vor þorði hann ekki að mæta í skólann. Hann var hræddur um að verða tekinn aftur.Mynd/Golli Oft er mjög gestkvæmt á heimilinu í Hafnarfirði. Þar er rúmt um alla en Oscar og vinir hans nýta líka garðskúr sem sína félagsmiðstöð.Mynd/Golli „Ég myndi segja að þetta væri eitt erfiðasta áfall sem ég hef lent í, þegar hann var tekinn. Ég á enn þá erfitt með að tala um það,“ segir Sonja. Hún tárast þegar hún talar um brottvísunina í nóvember 2024.Mynd/Gollli Flestir vinir Oscars eru frá Venesúela. Þeirra bíða ólík örlög á Íslandi. Adrian, t.v., fékk kennitölu vorið 2025 á meðan bræðurnir, Marco og Gio, t.h., bíða eftir niðurstöðu hvort þeim verður brottvísað ásamt foreldrum sínum. Þar sem Oscar er sá eini frá Kolúmbíu þá kalla vinir hans hann Colombia.Mynd/Golli Oscar byrjaði að venja komur sínar á heimili Svavars og Sonju og var fljótlega orðinn daglegur gestur. Hjónin hrifust strax af drengnum sem er vinamargur, vel liðinn og brosmildur.Mynd/Golli Fjölmiðlar Ljósmyndun Fréttir ársins 2025 Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Innlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira
Í sífellt flóknari heimi, þar sem fréttirnar buna áfram og stjórnmálin snúast hraðar og hraðar, eru sinnuleysi og kaldhæðni alltaf í nánd að leita færis. Það getur virst ómögulegt að skilja heiminn. Áreitið er stöðugt. Það er svo auðvelt að gefast upp. En saga Oscars gerir það ómögulegt að vera sama. Alþjóðastjórnmál birtast hér í lífi einnar ungrar manneskju. Við erum nærri þegar örlög hans eru mótuð og ráðin. Stefna í málefnum útlendinga, sem ætlað er að vernda Ísland, mætir skyndilega veruleikanum – þar sem samfélag tekur höndum saman í verndarskyni. Til að vernda Oscar. Í sundurleitum heimi er dómnefndin ekki að verðlauna eina glæsilega mynd, heldur rannsóknarmyndaröð. Samkenndin og nærveran í myndunum hittir okkur í hjartastað og dregur okkur inn í ferðalag sem vekur opinskátt spurningar um grunngildi Íslands og framtíðina sem við deilum saman.“
„Margir þurfa tíma til að átta sig á sögunni, þurfa baksýnisspegil til að átta sig á því sögulega eða umbreytandi andartaki sem átti sér stað fyrir framan þá. En framúrskarandi ljósmyndari er öðruvísi. Hann sér andartakið fyrir. Berst til að koma sér í rétta stöðu. Og bíður þolinmóður þangað til stundin rennur upp og rétt er að smella af. Þessi sögulega stund, sem hlaut verðlaunin Fréttamynd ársins 2025, á sér langan aðdraganda. Myndin sýnir fyrstu stundina í sögu Íslands þegar fjórar helstu valdastöðurnar voru allar í höndum kvenna: Halla Tómasdóttir forseti, Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri í Reykjavík og Guðrún Karls Helgudóttir biskup sitja fyrir á sjálfsmynd sem virðist tekin í hita augnabliksins. Við þekkjum öll sjálfuna, hversdagslega athöfn sem endurtekur sig endalaust – óformleg, næstum kjánaleg – en þessar fjórar konur virðast engu að síður vera meðvitaðar um það afar táknræna og sögulega andartak sem þær eru hluti af. Að bak við brosið séu þær þarna sem fulltrúar harðrar aldalangrar baráttu fyrir jafnrétti kvenna sem er hvergi lokið.“
Fjölmiðlar Ljósmyndun Fréttir ársins 2025 Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Innlent Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Innlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira