Ekki er allt sem sýnist í Dimmu Freyja Þórisdóttir skrifar 11. apríl 2026 11:15 Mikið ósætti ríkir milli Stebba Jak og þeirra sem eftir eru í þungarokkshljómsveitinni Dimmu. Facebook/Dimma Hljómsveitin Dimma segir fullyrðingar tónlistarmannsins Stefáns Jakobssonar, Stebba Jak, um að bassaleikarinn Silli Geirdal og eiginkona hans hafi sett sig upp á móti honum, vera ósannar. Þetta segir í færslu sem birt var í dag á Facebook-síðu hljómsveitarinnar Dimmu en Stefán hætti sem söngvari hljómsveitarinnar eftir fimmtán ára skeið nú í vikunni.
Ingólfur H. Geirdal, gítarleikari þungarokkshljómsveitarinnar Dimmu, skrifaði og birti langa færslu fyrir hönd hljómsveitarinnar í dag. Þar segir hann að Stefán hafi ekki farið með rétt mál í yfirlýsingu sem hann birti á Facebook-síðu sinni á fimmtudaginn. Í yfirlýsingunni, sem ber yfirheitið „Hættur í Dimmu“, segir Stefán að þau Silli og eiginkona hans hafi tekið afstöðu gegn honum í dómsmáli þar sem hann var ákærður fyrir líkamsárás en Stefán var sýknaður í málinu í Héraðsdómi Reykjaness á miðvikudaginn, 8. apríl. „Stefán Jakobsson birti nýverið yfirlýsingu á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum þar sem hann ber Silla Geirdal og eiginkonu hans þungum sökum. Þessar fullyrðingar eru ekki bara ærumeiðandi óhróður, heldur ósannindi,“ segir Ingólfur í færslunni fyrir hönd Dimmu. Reyndu allt til að koma á sáttum Stefán fullyrðir að Silli og eiginkona hans hafi frá upphafi máls tekið skýra afstöðu gegn honum og kennt honum um þessar ófarir. Það er rangt,“ skrifar Ingólfur í færslunni en þeir Silli eru bræður. Hann segir einnig frá því að hjónin hafi gert allt sem hægt var í von um að koma á samtali og sáttum milli Stefáns og mannsins sem sakaði hann um ofbeldi. Stefán hafi hafnað þeim tilraunum alfarið og sagt að málið yrði að fara sína leið. „Þar sem báðir aðilar tengdust þeim hjónum (annars vegar fjölskylduböndum og hins vegar vinaböndum) og aðilum bar ekki saman um málsatvik, voru þau hjónin sett á milli steins og sleggju og báðu um að þau væru ekki dregin inn í þessar deilur,“ er skrifað í færslunni sem er birt á Facebook-síðu hljómsveitarinnar. Þar segir að Stefán hafi svarað beiðninni með „blokkunum á samfélagsmiðlum, útskúfun og kröfum frá Stefáni um að eiginkona Silla kæmi ekki baksviðs á tónleikum sveitarinnar“. Samstarfið sprakk eftir allt saman Líkt og gefur að skilja hafi það ekki gert andrúmsloftið auðveldara fyrir neinn og að þetta hafi á endanum orðið til þess að samstarf hljómsveitarmeðlimanna sprakk. Ingólfur skrifar í færslunni að Silli sé einn af stofnmeðlimum hljómsveitarinnar en hún hefur starfað í tuttugu og þrjú ár. Hann hafi undanfarin ár séð um umboðsmennsku og rekstur sveitarinnar auk annarra starfa. Ef hann hefði tekið skýra afstöðu gegn Stefáni hefði samstarfinu verið sjálfhætt strax í upphafi. Þvert á móti hafi Silli haldið áfram að bóka tónleika, hljóðblanda og klippa myndefni og hanna auglýsingar ásamt eiginkonu sinni, þar sem Stefán hafi oftar en ekki verið í forgrunni eins og áður. „Við bræður trúðum því að styrkur Dimmu lægi í heildina og við ættum allavega tíu góð ár eftir saman. Ljóst er nú að svo verður ekki en að slíta samstarfinu með því að dreifa óhróðri og úthúða fyrrum samstarfsfólki sínu í fjölmiðlum er ekki bara ljótt, heldur óheiðarlegt,“ segir í færslunni. Leyfðu okkur að lifa í friði Þeir telji ásetning Stefáns vera augljósan: „að búa þannig um hnútana að við fyrrum samstarfsfélagar hans eigum okkur varla viðreisnar von,“ en að með því séu ekki einungis þeir rúmu tveir áratugir sem Dimma starfaði rýrðir heldur líka og þá sérstaklega þau fimmtán ár sem hann var í hljómsveitinni. Eftirstandandi hljómsveitarmeðlimir Dimmu biðla til Stefáns að draga sig ekki inn í sín mál. „Okkar leiðir hafa skilið og það hlýtur að vera hægt að leyfa okkur að lifa í friði, þó ekki væri nema bara af virðingu við þær fjölmörgu góðu minningar og tónlistarlegu arfleifð sem við sköpuðum saman,“ eru lokaorð færslunnar.
Tónlist Mest lesið „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Tíska og hönnun Fann ástina og tók sénsinn í New York Lífið Kokkur ársins grillar tvo rétti sem allir geta leikið eftir Lífið samstarf Mormónastjarna kemur út úr skápnum Lífið Halldór Haraldsson er látinn Tónlist Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar Bíó og sjónvarp Lést af völdum alnæmis Lífið Fleiri fréttir Halldór Haraldsson er látinn Lofsyngja tónleika Laufeyjar í Kína Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Quarashi hyggst „Do it again“ Kvennatónlistarhátíð Rodrigo vekur athygli Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Jeremy Strong „reivaði“ við Retro Stefson Bein útsending frá Bergmáli á Þingvöllum Tay Keith er fallinn frá aðeins 29 ára að aldri Hipsumhaps rýfur þögnina „Ég er skíthræddur“ Tónlistin bjargráð eftir erfiða kulnun Bonnie Tyler vöknuð úr dái Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Madonna með heitustu dansmynd ársins Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum „Pólitíkusar sem tala á þennan veg: Fokk jú“ „Þú getur ekki ráðist að mér þegar ég er að borða með ömmu minni“ Peabo Bryson er látinn Datt af sviðinu og beint í skurð „Stundum verður maður að segja fokk it“ „Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“ Íslenskur tónlistararfur loksins aðgengilegur öllum Sjá meira