Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Freyja Þórisdóttir skrifar 11. apríl 2026 12:27 Aþena Máney og Ríkey Rúna, fimm og tíu ára, röltu úr eftir ströndinni með afa sínum til að bera hvalrekann augun. Aðsend Jónas Welding Jónasson, íbúi á Stokkseyri, segist hafa frétt af hvalreka við afleggjara að Skipum í morgun. Hann og afastelpurnar hans hafi þá ákveðið að rölta að hvalnum í hádeginu.
Aþena Máney og Ríkey Rúna eru ekki nema fimm og tíu ára gamlar en þær hafi ekki kippt sér neitt sérstaklega upp við hræið heldur haft meiri áhyggjur af næsta flóði. „Stelpurnar höfðu meiri áhyggjur af því að það færi að flæða að og vildu ekkert vera að þvælast úti á einhverju skeri, annars hressar bara,“ segir Jónas í samtali við fréttastofu Vísis. Hann segir einnig frá því að það sé ekki óalgengt að sjá hvali á leik við strendur bæjarins. Sjálfur býr hann nálægt sjónum og sá búrhval sem þennan leika listir sínar fyrr í vetur. Fréttir af öðrum hvalreka bárust í gær en sá liggur við Írskrabrunn, um kílómetra frá Gufuskálum á Snæfellsnesi, en það er heldur óalgengt að búrhvalir reki á land með svona stuttu millibili. „Ég fór að velta fyrir mér hvort að þetta væri sami búrhvalur og ég sá í vetur. Þá sat ég bara í heita pottinum heima og fylgdist með honum í rúmar tíu mínútur þarna alveg uppi í fjöru,“ segir Jónas. Hvalrekann er hægt að sjá frá nærliggjandi vegi, en Jónas segir að úr fjarlægð hafi hann litið út einsog bíll af því hvernig það glampaði á hvalrekann. „Ég hugsa að það sé ekki langt síðan hann rak á land, orðinn ansi fölur samt,“ segir Jónas og bætir við að þetta sé stærsti hvalur sem hann hefur séð reka á land síðan hann flutti á Stokkseyri árið 2019.
Hvalir Árborg Dýr Mest lesið Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tilkynnt um tvær líkamsárásir Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Skil næstu lægðar nálgast Innlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Fleiri fréttir Skuggahliðar aukinnar sveppatínslu „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Sjá meira