Ótrúlegt flug undir stjórn Guðjóns og Haukur bjó til helming marka Löwen Sindri Sverrisson skrifar 11. apríl 2026 19:41 Guðjón Valur Sigurðsson er á stórkostlegu flugi með Gummersbach. Getty/Michael Hundt Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach hafa vakið verðskuldaða athygli í þýska handboltanum í vetur. Þeir unnu í kvöld sinn tíunda sigur í röð og það af gríðarlegu öryggi. Haukur Þrastarson var í algjöru aðalhlutverki í leik gegn Flensburg.
Gummersbach vann lærisveina Rúnars Sigtryggssonar í Wetzlar á heimavelli í dag, 32-24, og heldur því sigurgöngu sinni áfram en liðið hefur ekki tapað síðan 14. desember, þegar það tapaði með einu marki gegn toppliði Magdeburg. Gummersbach er nú með 41 stig í 4. sæti deildarinnar, eftir 27 leiki, aðeins stigi á eftir Füchse Berlín og fjórum á eftir Flensburg sem hefur leikið 28 leiki. Liðið er nú fjórum stigum á undan stórveldi Kiel sem er í 5. sæti. Elliði Snær Viðarsson skoraði þrjú mörk fyrir Gummersbach í dag og Teitur Örn Einarsson eitt. Liðið var 17-8 yfir í hálfleik og sigurinn aldrei í hættu eftir það. Ludvig Hallbäck var markahæstur með níu mörk. Rúnar er með Wetzlar í fallsæti sem stendur, með 11 stig í næstneðsta sæti, en aðeins stigi á eftir Minden og þremur á eftir Bergischer þegar sex umferðir eru eftir. Haukur langefstur eftir tíu stoðsendingar Fyrr í dag var Haukur Þrastarson í miklum ham með Rhein-Neckar Löwen gegn Flensburg en varð þó að sætta sig við þriggja marka tap, 36-33, á heimavelli. Haukur kom að meira en helmingi marka Löwen því hann átti heilar tíu stoðsendingar og skoraði svo sjálfur sjö mörk, úr þrettán skotum. Hann var næstmarkahæstur en með langflestar stoðsendingar eins og svo oft í vetur. Haukur er langefstur á lista yfir flestar stoðsendingar á leiktíðinni því hann hefur átt 159, eða 30 fleiri en næsti maður, Marian MIchalczik hjá Hannover. Gísli Þorgeir Kristjánsson er svo með 126 stoðsendingar í 3. sæti.
Þýski handboltinn Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira