Handbolti

Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sænski handboltaáhugamaðurinn mætti á leikinn á rafskutlu sinni og var með ljósin kveikt sem blinduðu markvörð hins liðsins. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Sænski handboltaáhugamaðurinn mætti á leikinn á rafskutlu sinni og var með ljósin kveikt sem blinduðu markvörð hins liðsins. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/ Ian Forsyth

Hinn 63 ára gamli Roland komst óvænt í sviðsljósið í sænsku úrslitakeppninni í handbolta á dögunum en vegna hans þurfti að gera hlé á leiknum.

HK Malmö og Ystad voru að spila í átta liða úrslitum þegar dómararnir stöðvuðu skyndilega leikinn þegar tvær mínútur voru eftir.

Markvörður gestanna í Ystad fór til dómarans og benti upp í stúku. Eitthvað hinum megin í höllinni blindaði hann. Dómarinn tók þá ákvörðun að stöðva leikinn.

Ástæðan var að umræddur Roland var mættur á leikinn á rafskutlunni sinni og það sem verra var að hann gleymdi að slökkva ljósin.

Ljósið á rafskutlu Rolands skein beint í andlitið á markverði Ystad.

Helsta áhugamál Rolands er íþróttir. Á sunnudaginn spiluðu fyrst handboltaliðið hans, Ystads IF, og síðan fótboltaliðið, Malmö FF, leiki nálægt hvort öðru. Þá greip hann tækifærið til að sjá bæði uppáhaldsliðin sín.

Starfsmaður leiksins fór upp til Rolands og hvort sem hann bað hann um að slökkva ljósið eða ekki þá var lokaniðurstaðan að loka dyrunum sem hann hafði komið inn á rafskutlunni.

„Ég hafði smá áhyggjur af því að ég myndi ekki ná á milli leikvanganna, maður veit jú að MFF hefur marga stuðningsmenn á sínum leikjum. Þess vegna fór ég aðeins fyrr úr stúkunni fyrir fatlaða í Baltiska hallen og fann opnar dyr út að stúkunni þar sem ég gat séð lok handboltaleiksins,“ segir Roland við Sydsvenskan.

Hann er glaður yfir því að það hafi verið markvörður Ystad sem blindaðist.

„Ef það hefði verið markvörður Malmö sem ég truflaði hefði kannski orðið mikið uppnám. Að ég hefði gert það viljandi. Einhver hefði kannski jafnvel sakað Ystad um að þetta hafi verið gert meðvitað, allt hefði getað farið til fjandans þá.“

Eftir að atvikið vakti athygli fékk hann leikmiða á leikinn á fimmtudaginn frá Ystads IF. Þar mun hann einnig afhenda leikboltann, auðvitað á rafskutlunni sinni.

Ystad vann leikinn og er 2-1 yfir í einvíginu. Sigur á heimavelli í næsta leik tryggir liðinu sæti í undanúrslitunum.

Hér fyrir neðan má sjá atvikið á samfélagsmiðlum sænska ríkisútvarpsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×