Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Magnús Jochum Pálsson skrifar 22. apríl 2026 07:02 Andri Már, Jökull í Kaleo, Bjarni Guðjóns og Mikki Harðar eru meðal einhleypra og eftirsóttra manna á lista Lífsins á Vísi. Vísir/Vilhelm/Aðsendar Vorið er komið, sveitarstjórnarkosningar á næsta leiti og sumarið handan við hornið. Af því tilefni hefur Lífið á Vísi tekið saman lista yfir glæsilega einhleypa og eftirsótta menn sem gott er að hafa auga með.
Hér að neðan má sjá lista með fjórtán öflugum og einhleypum sumarstrákum: Bjarni Guðjónsson - 47 ára Það hefur verið mikill tími breytinga hjá Bjarna Guðjónssyni undanfarið, nýverið sagði hann upp störfum sem forstöðumaður fyrirtækjaviðskipta hjá VÍS og tók annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Ekki nóg með það heldur slitnaði nýverið upp úr sambandi hans og Önnu Maríu Gísladóttur en þau höfðu verið saman í þrjátíu ár frá unga aldri og eiga þrjú börn saman. Sjá einnig: Skipta Kjartani og Mörtu út fyrir nýliðana tvo Bjarni er sonur Skagagoðsagnarinnar Guðjóns Þórðarsonar og byrjaði ferilinn hjá ÍA áður en hann fór í atvinnumennsku og spilaði þar með Newcastle United, Genk, Stoke City, VfL Bochum, Coventry og Plymouth Argyle. Hann sneri síðan aftur á Skagann áður en hann endaði ferilinn hjá KR. Eftir það hefur hann þjálfað meistaraflokk karla hjá Fram og KR, var framkvæmdastjóri KR og hefur starfað hjá VÍS, sem sölustjóri í sjávarútvegi hjá Odda og rekstrarstjóri hjá Ellingsen. Bjarni er í öðru sæti hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni. Jökull Júlíusson - 36 ára Jökull Júlíusson hefur gert það gott sem söngvari Kaleo síðustu fimmtán ár og hljómsveitin farið sigurför um heiminn. Í fyrra héldu Kaleo tónleika í Vaglaskógi og endurtaka leikinn með stórtónleikunum Bergmáli á Þingvöllum í júní. Sjá einnig: Jökull og Telma hvort í sína áttina Nýverið slitnaði upp úr sambandi Jökuls og sálfræðingsins Telmu Fanneyjar Magnúsdóttur eftir tæplega tíu ára samband og trúlofun. Hann er því kominn aftur á markaðinn og vafalaust eftirsóttur. Sigurður Sævar Magnússon - 28 ára Sigurður Sævar Magnússon hefur verið einn öflugasti myndlistarmaður landsins síðustu ár. Hann hefur haldið fjölda einkasýninga, hérlendis og erlendis og útskrifaðist úr konunglegu hollensku listaakademínunni í Haag sumarið 2023. Sigurður er þar að auki kominn aftur á markaðinn eftir að það slitnaði upp úr sambandi hans og sjúkraliðans Guðbjargar Ægisdóttur eftir rúmlega þriggja ára samband. Sjá einnig: Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Síðasta einkasýning Sigurðar var í Landsbankahúsinu í Austurstræti í desember og fyllti hann húsið af góðum gestum. Hann flutti síðan fyrr á árinu aftur til Haag í Hollandi þar sem hann starfar sem listamaður. Sigurður Sævar er með vinnustofu í íbúð sinni á Háaleitisbraut. Þar er hann með safn eigin verka og fjölda verka eftir aðra listamenn.Vísir/Vilhelm Jóhann Kristófer Stefánsson - 33 ára Jóhann Kristófer, betur þekktur sem Joey Christ, er rappari, leikstjóri og leikari. Hann hefur gert það gott í rappsenunni frá því hann kom fyrst fram á sjónarsviðið með 101 Boys fyrir rúmum tíu árum síðan og hóf síðan sóló-feril sinn af krafti árið 2017 þegar hann gaf út tvær plötur með átta daga millibili, Anxiety City og Joey. Sjá einnig: „Lélegur í að fela hvernig mér líður og bera harm minn í hljóði“ Hann hefur síðan þá verið duglegur að gefa út tónlist og gaf út sína þriðju breiðskífu, Joey 3, síðasta haust. Samhliða tónlistinni hefur Jóhann leikstýrt fimm seríum af raunveruleikaþáttunum Æði og skrifað og leikið í leikritunum Rómantísk gamanmynd og Sýningin okkar. Jóhann Kristófer hefur verið öflugur í rappsenunni síðustu tíu ár. Brynjar Steinn Gylfason - 26 ára Talandi um Æði þá er Æðibitinn Brynjar Steinn Gylfason, betur þekktur sem Binni Glee, einhleypur og sérlega eftirsóttur. Binni er að norðan og vakti fyrst athygli á Snapchat árið 2016 áður en hann sló rækilega í gegn með Patreki Jaime og Bassa Maraj í raunveruleikaþáttunum Æði. Sjá einnig: „Mig langar að lifa lífinu til að njóta þess“ Binni er hjartahlýr og skemmtilegur flippari sem vinnur á Hrafnistu samhliða því að vera áhrifavaldur. Binni er svo eftirsóttur að skilaboðunum rignir inn til hans daglega frá hinum ýmsu mönnum. Andri Már Eggertsson - 27 ára Andri Már Eggertsson, betur þekktur sem Nablinn, er uppalinn í Kópavogi, harður HK-ingur og vinnur á leikskóla samhliða því að vera einn vinsælasti íþróttafréttamaður landsins. Hann hefur getið sér gott orð fyrir hnyttni, beinskeytni og svartan húmor í viðtölum á hliðarlínunni í Bónus-deildinni síðustu ár. Sjá einnig: Nablinn ræðir um naflann fræga Andri tók svo þátt í annarri seríu af gamanþáttunum Bannað að hlæja þar sem hann komst í úrslit með grófri en sprenghlægilegri frammistöðu og var hársbreidd frá því að vinna. Síðustu helgi birtist viðtal á Vísi þar sem Andri ræddi við Dóru Júlíu og sýndi á sér mýkri, einlægari hlið. Mikael Emil Kaaber - 26 ára Mikael Kaaber útskrifaðist af leikarabraut LHÍ árið 2024, hefur komið víða við á sviði, í sjónvarpi og í kvikmyndum þrátt fyrir ungan aldur og er einn heitasti leikari landsins í dag. Mikael fór með stórt hlutverk í kvikmyndinni Ljósbroti (2024), lék í sjónvarpsþáttunum Brjáni á síðasta ári og fer með eitt aðalhlutverkanna í geysivinsæla söngleiknum Moulin Rouge í Borgarleikhúsinu. Þá fetaði hann í fótspor Magnúsar Scheving og Dýra Kristjánssonar þegar hann tók að sér hlutverk Íþróttaálfsins í byrjun árs. Sjá einnig: Ung, upprennandi og sjóðheit stjarna á lausu Mikael Emil Kaaber hætti með kærustu sinni til fjögurra ára, Svölu Davíðsdóttur, í fyrra og hefur verið einn eftirsóttasti bitinn á markaðnum síðan. Mikael Kaaber með ömmu sinni á Galdrakarlinum í Oz.Owen Fiene Marinó Máni Mabazza - 23 ára Annar sem hefur gert það gott á fjölum Borgarleikhússins er dansarinn Marinó Máni Mabazza. Marinó er ekki í lélegu formi. Marinó lærði við Listdansskóla Íslands og hefur dansað í fjölmörgum sýningum í báðum stóru leikhúsunum síðustu ár, má þar nefna Billy Elliot og Eitraða litla pillu í Borgarleikhúsinu og Storm í Þjóðleikhúsinu. Hann dansar um þessar mundir í söngleiknum Moulin Rouge og stýrir hundinum Toto í Galdrakarlinum í Oz. Athygli vakti þegar hann lenti í hrikalegu golfkúluslysi í fyrra en hann hefur síðan jafnað sig og gott betur en það. Marínó er í hrikalega góðu formi, býr yfir strákslegum sjarma og er mikill húmoristi. Óskar Borgþórsson - 22 ára Árbæingurinn Óskar Borgþórsson, gjarnan kallaður Óskar Bogga, er ekki bara einn mest spennandi leikmaðurinn í Bestu deildinni heldur líka einhleypur og eftirsóttur meðal kvenpeningsins. Óskar hefur skorað sjö mörk í 22 leikjum fyrir Víking.Paweł/Vísir Óskar ól manninn í Árbænum, byrjaði sautján ára í meistaraflokki Fylkis árið 2021 og fór í atvinnumennsku til norska liðsins Sogndal tveimur árum síðar. Eftir tvö ár í Noregi sótti Víkingur Reykjavík kappann og hefur hann verið lykilmaður liðsins síðan. Óskar hefur spilað níu leiki fyrir U21-landslið Íslands og spilaði sinn fyrsta A-landsleik þegar Ísland mætti Mexíkó í febrúar fyrr á árinu. Mikael Harðarson - 28 ára Mikael Harðarson, gjarnan kallaður Mikki Harðar, er Vesturbæingur, menntaður viðskiptafræðingur og frumkvöðull. Hann hefur verið áberandi í viðskiptalífinu, er fyrrverandi forstjóri Oche Reykjavik og starfaði þar áður hjá Arion banka. Nýverið slitnaði upp úr sambandi hans og Sunnu Dís Heitmann, Hafnarfjarðarpíu og naglafræðings, þannig hann er kominn aftur á markaðinn og þykir einkar eftirsóttur. Mikki Harðar er einkar huggulegur. Egill Andrason - 24 ára Egill Andrason er rauðhærður hjartaknúsari að norðan, útskrifaðist af sviðshöfundabraut LHÍ árið 2024 og hefur komið að hinum ýmsu leiksýningum í bæði Þjóðleikhúsinu og Borgarleikhúsinu. Egill kom að tónlistarstjórn og tónlistarflutningi í sýningunni Fúsa í Borgarleikhúsinu og leikstýrði gamanleikritinu Ekki hugmynd á yfirstandandi leikári. Egill er jafnframt öflugur píanóleikari og er spunapíanóleikari Improv Íslands. Egill er kannski ekki þekktasta nafnið á listanum en hann er einn sá allra efnilegasti. Egill brosir breitt þessa dagana. Darri Tryggvason - 31 árs Darri Tryggvason er uppalinn í Hafnarfirði, píanóleikari að upplagi sem fór að þeyta skífum og hóf síðan tónlistarferil sinn undir listamannsnafninu Háski árið 2018. Hann hefur síðan þá gert það gott með lögum á borð við „Hvert ertu að fara?“ og „Drive“ með Séra Bjössa. Hann vakti athygli síðasta haust þegar hann greindi frá því í viðtali við Vísi að hann væri hættur að gefa út tónlist undir nafninu Háski eftir að hafa gengið í gegnum mikla ástarsorg. Samkvæmt heimildu fréttastofu er Darri enn á lausu og með þeim heitari á markaðnum. Arnór Snær Sigurðsson - 26 ára Arnór Snær Sigurðsson er úr Keflavík, menntaður fjármálaverkfræðingur frá HR og vakti fyrst athygli á Snapchat þar sem hann varð mjög stór. Hann hefur starfað hjá Íslandsbanka, Play og vinnur nú hjá veðmálasíðunni Epic Bet. Arnór er mikill grallari og stýrir vinsæla hlaðvarpinu Veislunni með Sigurði Bond og Ágústi Beinteini. View this post on Instagram A post shared by Arnór Snær Sigurðsson (@arnorsnaer) Daníel Hjörvar - 27 ára Daníel Hjörvar Guðmundsson er lögfræðingur, tískuspekúlant, vínsérfræðingur hjá Santé og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarkosningunum í Reykjavík í næsta mánuði. Daníel er fjölfræðingur, fróður um vín og osta, lögfræði og íslenskan arkitektúr. Þá hefur hann vakið athygli fyrir óhefðbundinn tískustíl, lífsgleði og smitandi jákvæðni. Það er ekki að ástæðulausu að Sjálfstæðisflokkurinn fékk hann í fimmtánda sætið hjá sér í borginni. Daníel Hjörvar er mikill lífskúnstner.
Ástin og lífið Mest lesið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Menning Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Lífið Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Fleiri fréttir Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Sjá meira