Ari Edwald selur í Garðabænum Magnús Jochum Pálsson skrifar 20. apríl 2026 14:31 Ari Edwald keypti þakíbúð í Þorraholti 1b síðasta sumar og er á innan við ári búinn að setja hana á sölu. Háborg/Vísir Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, hefur sett íbúð sína að Þorraholti í Garðabæ á sölu. Ari festi kaup á íbúðinni síðasta sumar en ákvað svo að bjóða sig fram í sveitarstjórnarkosningunum Reykjavík og er því væntanlega í leit að fasteign í höfuðstaðnum. Hann óskar eftir tilboði í íbúðina.
Smartland greindi frá því fyrr í dag að Ari væri að selja íbúðina. Í umfjöllun Smartlands kom fram að samkvæmt heimildum væri Ari kominn með augastað á íbúð í Reykjavík. Íbúðin er ein 49 íbúða í álklædda fjölbýlishúsinu Þorraholti 1b sem Hjalti Brynjarsson og teymi hjá Nordic Office of Architecture hönnuðu og var byggt árið 2025 af Reir verk. Vísir greindi frá því síðasta sumar að bæði Ari og sonur hans, Páll Edwald, hefðu keypt íbúðir í húsinu. Íbúðin er 165 fermetra, fjögurra herbergja þakíbúð með frábæru útsýni og þrjátíu fermetra þaksvölum með heitum potti. Óhindrað útsýni er til vesturs, suðurs og norðurs, sérmerkt bílastæði í bílakjallara og 1,5 fermetra útigeymsla til viðbótar við birt flatarmál. Sjá einnig: Flutti til Reykjavíkur í dag Íbúðin samanstendur af tveimur baðherbergjum, þremur svefnherbergjum, forstofu, þvottahúsi og stóru alrými með eldhúsi, borðstofu og gólfsíðum gluggum eftir vesturhlið. Lesa má nánar um fasteignina á fasteignavef Vísis. Þorraholtið er stutt frá stofnæðum og þjónustu í Smáralind og í Garðabæ. Sömuleiðis er nálægð við náttúruna í Heiðmörk og Vífilsstaðavöllur í bakgarðinum ásamt fleiri golfvöllum í nágrenninu.
Fasteignamarkaður Garðabær Miðflokkurinn Mest lesið Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Lífið Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Lífið Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Lífið Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Lífið Hvað veistu um... fugla? Lífið Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Lífið Sonurinn fékk nafnið Skógur Lífið Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Lífið Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga Lífið „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... fugla? Bökuðu þúsund bollakökur sem kláruðust strax Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Sambönd héldu þrátt fyrir harðan kosningaslag Skipstjóri selur heilsárshús á 190 milljónir Ris, fall og óútskýrð auðæfi Jeffrey Epstein Sonurinn fékk nafnið Skógur Stjörnulífið: Sjö ár af stanslausri ást Stjörnum prýddur gestalisti og Billie Eilish í glænýju hlutverki Áslaug Arna mætti með nýja kærastann Margrét og Ísak Ernir gengu í það heilaga „Hræðilegt að sjá ofbeldið sem ég beitti mig“ Krakkatía vikunnar: Skyr, knörr og rauðbrystingur Myndaveisla úr gleðinni hjá já-fólkinu Myndaveisla af stuðinu hjá Áfram Ísland Kjósendur á lokasprettinum: „Ég bara gleymdi þessu“ Dorrit missti aðgang á forrit Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Sjá meira