Handbolti

Einar Bragi þurfti að sætta sig við tap eftir tvær fram­lengingar

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Einar Bragi Aðalsteinsson spilaði 80 mínútna langan leik í dag. 
Einar Bragi Aðalsteinsson spilaði 80 mínútna langan leik í dag.  Davor Javorovic/Pixsell/MB Media/Getty Images

Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar í Kristianstad hreinlega neituðu að gefast upp gegn Alingsas en þurftu á endanum að sætta sig við 38-43 tap eftir þrjár framlengingar.

Tapið er nokkuð óvænt þar sem Kristianstad er ríkjandi deildarmeistari en Alingsas er núna komið með 1-0 forystu í undanúrslitaeinvígi sænska handboltans.

Alingsas átti sigurinn skilið en þurfti sannarlega að hafa mikið fyrir honum. Heimamenn Kristianstad létu ekki segjast og þrátt fyrir að hafa verið tveimur mörkum undir eiginlega allan leikinn tókst þeim að knýja fram framlengingu.

29-29 var staðan eftir venjulegan leiktíma og Einar Bragi skoraði svo 35-35 jöfnunarmarkið sem knúði fram aðra framlengingu.

Í annarri framlengingunni tókst Kristianstad hins vegar ekki að hanga í gestunum og Alingsas sigldi 38-43 sigri í höfn.

Einar Bragi skoraði 9 mörk í tvíframlengdum leiknum en markahæstur var Axel Mansson með 12 mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×