„Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Freyja Þórisdóttir skrifar 25. apríl 2026 16:44 Hreinn Bergmann Óskarsson veigrar sér ekkert við því að fara fjölmargar ferðir í strætó til þess að komast á leiðarenda. Aðsend/Vísir/Vilhelm Njarðvíkingurinn Hreinn Bergmann Óskarsson gerði sér lítið fyrir og fór átta mismunandi strætóferðir þriðjudaginn síðasta, þann 21. apríl. Þá fór hann meðal annars í læknisheimsókn og með heyrnartæki í viðgerð. Hreinn er lögblindur og með skerta heyrn eftir að hafa lent í slysi en lætur það ekki stoppa sig á nokkurn hátt. Dóttir hans birti á dögunum færslu þar sem hún reifar nýjustu ferðasögu pabba síns. „Í rauninni er þetta bara hefðbundinn dagur hjá honum,“ segir Gróa Hreinsdóttir um föður sinn í samtali við blaðamann Vísis en hún segir hann vera alveg ótrúlega duglegan. Þriðjudaginn 21. apríl hafi hann farið að útrétta í Reykjavík og birti Gróa ferðasöguna í færslu á Facebook-síðu sinni, hér er hún í heild sinni. Strætó úr Njarðvík kl. 10 í gærmorgun inn í Fjörð. Strætó frá Firði í Mjódd. Leigubíll úr Mjódd í Hraunbæ til að láta laga heyrnartækin. Strætó úr Hraunbæ alveg niður á Skúlagötu. Strætó nr. 1 yfir í Lækjargötu. Strætó nr. 14 úr Lækjargötu í Glæsibæ til að hitta lækni. Strætó nr. 14 úr Glæsibæ niður í Verslunarskóla. Þaðan labbaði hann yfir Kringlumýrarbraut til að taka strætó inn í Fjörð og þaðan svo strætó í Njarðvík. Var kominn heim um kl. 17:00. Hreinn varð níræður í nóvember síðastliðnum en hann sótti sjálfur um pláss á elliheimili fyrir um þremur árum og fékk svo pláss nú í janúar. Hann varð ekill eftir að móðir Gróu, Guðrún Ásta Björnsdóttir, lést af völdum alzheimer-sjúkdómsins. Gróa og Hreinn eru bæði mjög músíkölsk og hefur Gróa meðal annars sinnt starfi organista, kórstjórnanda og tónlistarkennara.Aðsend „Mamma og pabbi voru gift í mörg, mörg ár en hún fékk Alzheimers. Þá passaði pabbi hana algjörlega og vildi ekki setja hana inn á stofnun. En svo kom að því að hún var lögð inn og hann fann þá hvað hann var búinn að vera mikið bundinn,“ segir Gróa. Lífið hélt áfram En hún segir hann alls ekki hafa fallið í neina „depression“ heldur hafi hann einfaldlega haldið sínum venjum. Þau feðginin hafi svo verið á ferð um landið fyrir nokkrum árum þegar hún segist hafa tekið eftir því að sjón Hreins væri farin að versna umtalsvert. „Við vorum að keyra saman norður í land. Hann fékk að keyra fyrsta spottann en mér leist ekkert á þetta, það var eins og hann hefði ekki alveg verið með fjarlægðarskynið í lagi og virtist ekki átta sig á því hversu langt í burtu næsti bíll var,“ segir Gróa og bætir við að síðan hafi hann misst bílprófið og sé orðinn lögblindur. Hreinn er að sögn þeirra sem fundu sig knúna til að skrifa ummæli við færsluna: magnaður, til fyrirmyndar, náttúruafl og einstaklega duglegur. Gróa tekur undir með ummælendunum.Aðsend Hann er sem fyrr segir kominn með pláss á elliheimili og var það vegna þess að hann var farinn að finna fyrir óöryggi þegar hann var einn heima. En Hreinn neitar að sögn Gróu að horfast í augu við það að komast ekki út úr húsi einn og óstuddur. Vill ekki vera að ómaka neinn „Ég hef margoft sagt honum að heyra í okkur, enda á ég fimm börn og þar á meðal býr sonur minn í Hafnarfirði og gæti vel stokkið til og skutlað afa sínum úr Firði og til læknis. En hann vill ekkert vera að ómaka okkur,“ segir Gróa. Sonurinn sem um ræðir er Sigurður Halldór Guðmundsson, einn stofnenda reggíhljómsveitarinnar Hjálma. Hreinn er fæddur þann 26. nóvember árið 1935 og fagnaði því stórafmæli nú í vetur. Þrátt fyrir að vera orðinn níræður er hann ófeiminn við að ferðast og flakka einn og óstuddur.Aðsend Hann býr í Hafnarfirði og Gróa segir blaðamanni frá því að hann eigi almennt frekar auðvelt með að taka hlé frá vinnu enda fari vinnudagurinn að mestu fram í stúdíói en ekki við skrifborð. Engu að síður kjósi afi hans frekar að finna úr úr ferðum sínum sjálfur. „Það hringdi í mig ung kona frá elliheimilinu og var að athuga hvort ég ætlaði að taka á móti honum í Reykjavík, hann væri þá lagður af stað með strætó að hitta lækni í Glæsibæ. En það var ekki svo enda var ég stödd í Noregi,“ segir Gróa og hlær, „honum finnst þetta ekkert mál“ bætir hún við. Vann hjá hernum Guðrún, móðir Gróu, var frá Þórukoti í Njarðvík en þau Hreinn kynntust þegar þau lentu saman í bekk í gagnfræðaskólanum í Keflavík, þaðan sem hann er. Hún fór síðar í Húsmæðraskólann að Staðarfelli. „Eftir það voru þau óaðskiljanleg,“ segir Gróa um foreldra sína. „Mamma var svakalega flink að elda og baka og tók að sér veislur fyrir fólk, en hún vann við verslunarstörf fyrst og vann síðan í mörg ár hjá hernum, bæði í mötuneytinu og í eldhúsinu í skólanum á vellinum,“ segir hún einnig. Þurfti að hætta eftir slysið „Pabbi lærði upphaflega húsasmíði og vann við það frá því svona um það bil þegar ég var að fæðast,“ segir Gróa aðspurð hvað Hreinn hafi starfað við fram að starfslokum. Hún segir einnig frá því að hann hafi átt trésmíðaverkstæði ásamt öðrum en hafi orðið fyrir slysi og þá hafi heyrnin farið. Þau Gróa, Hreinn og Guðrún léku öll í kvikmyndinni Málmhaus sem kom út árið 2013.Aðsend „Hann var líka einn stofnenda lúðrasveitar í Keflavík og spilaði meðal annars á saxófón og þverflautu. Læknarnir tjáðu honum eftir slysið að verkstæðið og hljóðfæraleikurinn væru of mikið álag fyrir heyrnina og hann þyrfti því að hætta,“ segir Gróa. Síðan þá hafi Hreinn meðal annars lært að gera uppmælingar og sinnt störfum á Keflavíkurflugvelli. Hann virðist af ummælum við færsluna hennar Gróu að dæma vera mjög vel liðinn og algjör fagmaður í því sem hann hefur tekið sér fyrir hendur í gegnum tíðina. Eldri borgarar Ferðalög Strætó Reykjanesbær Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Fleiri fréttir Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Sjá meira
„
Strætó úr Njarðvík kl. 10 í gærmorgun inn í Fjörð. Strætó frá Firði í Mjódd. Leigubíll úr Mjódd í Hraunbæ til að láta laga heyrnartækin. Strætó úr Hraunbæ alveg niður á Skúlagötu. Strætó nr. 1 yfir í Lækjargötu. Strætó nr. 14 úr Lækjargötu í Glæsibæ til að hitta lækni. Strætó nr. 14 úr Glæsibæ niður í Verslunarskóla. Þaðan labbaði hann yfir Kringlumýrarbraut til að taka strætó inn í Fjörð og þaðan svo strætó í Njarðvík. Var kominn heim um kl. 17:00.
Eldri borgarar Ferðalög Strætó Reykjanesbær Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Erlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Fleiri fréttir Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Sjá meira