„Við hlógum bara að því“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. apríl 2026 09:01 Elías Már hefur farið fjörlega af stað með Víkingi. vikingur.is Elías Már Ómarsson hefur farið á kostum með Íslandsmeisturum Víkings í byrjun tímabilsins í Bestu deild karla. Framherjinn er kominn með fimm mörk eftir fjórar umferðir, hlær að myndasendingum og hefur bara gaman af neikvæðu umtali í hlaðvörpum.
Elías samdi við Víkinga undir lok síðasta árs eftir að hafa leikið sem atvinnumaður í Hollandi, Frakklandi, Noregi, Svíþjóð og nú síðast Kína. „Maður er að komast betur og betur inn í þetta. Það er gott að hafa samherja í kringum sig sem eru með þvílík gæði. Gott að fá traust frá þjálfurunum og leikmönnum líka. Þetta hefur verið mjög góð byrjun fyrir mig persónulega og liðið sjálft,“ sagði Elías í viðtali við Stefán Árna Pálsson. Fyrir tímabilið snerist umræðan hins vegar um hvort Elías væri í nógu góðu leikformi og hvort hann yrði hreinlega nógu öflugur framherji fyrir Víking. Því var fleygt fram að Elías yrði jafnvel lánaður burt frá liðinu en hann hefur troðið sokk upp í kjaftinn á allri þeirri umræðu. „Ég veit ekki með það… Fólk heyrir bara eitthvað út í bæ og fer svo með það í hlaðvörpin, það dreifist um og verður stærra. Mér fannst bara gaman að heyra af þessu.“ Fór þetta eitthvað í þig? „Nei alls ekki neitt sko. Ég hafði bara gaman af þessu ef eitthvað og hef verið að djóka með þetta líka. Sölvi sýndi mér líka skemmtilega mynd, einhverja mynd sem var send til hans en við hlógum bara að því. Þetta er bara skemmtilegt og það þýðir ekkert að dvelja á þessu. Maður verður bara að keyra sig í gang og gera sitt besta.“ 90% djúpsteikt í Kína Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, sagði í viðtali við Fótbolta.net á dögunum að hann hefði verið lengi að ná kínverska mataræðina af sér. Var það eitthvað sem þú varst að glíma við?... Og þá er ég ekki að segja að þú hafir verið feitur. „Sko, þetta er allt öðruvísi menning þarna. Níutíu prósent af matnum er bara eitthvað djúpsteikt og það er kannski ekki mikið úrval í boði. Þetta var svolítið öðruvísi líf, sérstaklega að vera þarna einn. Maður var nánast vakandi á næturnar og sofandi á daginn.“ Innslagið úr Sportpakka Sýnar má sjá í spilaranum að ofan.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira