Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. apríl 2026 14:52 Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir kannast ekki við fullyrðingar um rán í kirkjunni í vikunni. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kannast ekki við að rán hafi verið framið í Lágafellskirkju í Mosfellsbæ í vikunni líkt og fullyrt hefur verið á samfélagsmiðlum. Þá kemur sóknarprestur af fjöllum.
Tilefnið er færsla Gústafs Níelssonar sagnfræðings á samfélagsmiðlinum Facebook þar sem er fullyrt að tveir ungir menn frá Mið-Austurlöndum hafi gert sér ferð í Lágafellskirkju fyrr í vikunni, ógnað ungum kvenpresti og rænt órekjanlegum staðgreiðslukortum útgefnum af Bónus. Furðar Gústaf sig á því að ekkert hafi heyrst um málið í fjölmiðlum. Færslan hefur vakið sterk viðbrögð. Grétar Stefánsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Vísi að lögreglu hafi ekki borist nein tilkynning um slíkt. Eftir fyrirspurnir fjölmiðla í dag hafi lögregla farið á vettvang í Lágafellskirkju til að kanna málið. „Við ræddum við prestana, það kannast enginn við neitt, það komu allir af fjöllum, þannig að þetta er hið undarlegasta mál,“ segir Grétar. Sr. Guðlaug Helga Guðlaugsdóttir sóknarprestur í Lágafellskirkju segir í samtali við Vísi að hún kannist ekki við meint rán. Né heldur reki hana minni til einhvers sambærilegs atburðar í kirkjunni nýverið. „Þar að auki er ég 47 ára, ég er ekki ung kona,“ segir Guðlaug hlæjandi. Hún segir presta vana því að takast á við allskonar áskoranir í starfi, það komi upp nokkrum sinnum á ári að hringja þurfi á lögreglu. Hún segist hugsi yfir færslunni á samfélagsmiðlum um hið meinta brot. „Það er svo margt rangt sem þarna kemur fram. Ég held að ef þetta hefði verið fólk úr Mosfellsbæ þá hefði þetta aldrei farið af stað, fólki finnst það geta sagt hvað sem er.“
Mosfellsbær Þjóðkirkjan Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði loks á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira