Geta unnið 22. leikinn í röð: „Þetta verður stál í stál“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. maí 2026 15:01 Lovísa Thompson gefur inn á línu á Elísu Elíasdóttur. Þær skoruðu báðar ellefu mörk í fyrsta leiknum gegn ÍBV. vísir/diego Valur og ÍBV mætast öðru sinni í úrslitum Olís-deildar kvenna í kvöld. Valskonur eru með 1-0 forystu í einvíginu og hefur gengið allt í haginn að undanförnu. Þjálfari Vals er þó með báða fætur á jörðinni og meðvitaður um styrk ÍBV.
Valur vann fyrsta leikinn gegn ÍBV á Hlíðarenda, 39-33. Eyjakonur voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 18-20, og náðu mest sex marka forskoti í seinni hálfleik, 19-25. En Valskonur voru mun sterkari á lokakafla leiksins og skoruðu sex af síðustu sjö mörkum leiksins. Valsliðið kom til Eyja rétt fyrir miðnætti í gær og að sögn þjálfarans Antons Rúnarssonar gekk siglingin vel. Hann kvaðst nokkuð sáttur með frammistöðu Vals í fyrsta leiknum gegn ÍBV en segir að liðið geti gert betur en þá. „Við skoruðum auðvitað 39 mörk í þessum leik en það er alveg klárt mál að við þurfum að gera betur á nokkrum sviðum, meðal annars í sókn og líka í vörn eins og alltaf en auðvitað var bara sterkt að ná að klára þetta,“ sagði Anton í samtali við Vísi í dag. „Ég býst bara við hörkuleik. Við erum auðvitað komnar til Eyja, á erfiðan útivöll og erum í úrslitaeinvíginu og úrslitakeppni þannig að þetta verður stál í stál og ekki við neinu öðru að búast.“ Anton Rúnarsson tók við þjálfun Vals fyrir þetta tímabil.vísir/diego ÍBV lenti í 2. sæti Olís-deildarinnar á eftir Val og sló Hauka út í hörkueinvígi í undanúrslitunum, 3-2. Anton segir Eyjaliðið sterkt og Valsliðið þurfi að vera tilbúið í baráttu kvöldsins. „Það er að mörgu að huga. Þetta eru frábærir leikmenn og leikmenn sem geta skorað upp úr engu og fleira. Þannig að við þurfum að vera klárar í alls konar augnablik í leiknum og fleira. Við erum búin að fara yfir hlutina og það er margt sem við hefðum getað gert betur í síðasta leik sem gengur vonandi upp í dag,“ sagði Anton. Valur vann síðustu tvo leiki sína á árinu 2025 og hefur unnið alla nítján leiki sína í öllum keppnum á þessu ári. Anton er að vonum ánægður með hvernig gengið hefur undanfarna mánuði. „Já, ekki spurning. Við höfum náð að halda fínum takti í þessu og það eru margar sem hafa stigið upp, bæði yngri og eldri leikmenn, og vonandi heldur það bara áfram,“ sagði Anton. ÍBV vann Hauka í rosalegu einvígi í undanúrslitum Olís-deildarinnar.vísir/ernir Með sigri í leiknum í kvöld getur Valur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli á laugardaginn kemur. Anton fer þó ekkert fram úr sér í þessum efnum. „Við tökum auðvitað bara einn leik fyrir í einu. Við þurfum að eiga toppframmistöðu til að ná í sigur og við ætlum okkur að sjálfsögðu að gera það. Við þurfum að spila hörkuvörn áfram og vera skynsamar og agaðar í okkar sóknarleik og finna réttu augnablikin til að komast í þessi færi sem við viljum fá,“ sagði Anton að lokum. Leikur ÍBV og Vals hefst klukkan 18:00 í kvöld og verður í beinni textalýsingu á Vísi.
Olís-deild kvenna Valur ÍBV Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira