Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Árni Sæberg skrifar 6. maí 2026 10:01 Sigríður Rakel Ólafsdóttir, markaðsstjóri Kosmos, Sverrir Hreiðarsson, framkvæmdastjóri Kosmos, og Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova Klúbbsins. Nova klúbburinn Nýtt farsímafélag í eigu Nova Klúbbsins, Kosmos, hefur formlega starfsemi í dag og er sagt marka tímamót á íslenskum fjarskiptamarkaði.
Í tilkynningu til Kauphallar segir að með lítilli yfirbyggingu, hagnýtingu gervigreindar og alsjálfvirkri þjónustu bjóðist viðskiptavinum nú hagstæðasta farsíma- og netþjónusta landsins, besta verðið á netinu erlendis og verðtrygging í tvö ár. Kosmos sé jafnframt fyrsta farsímafélagið á Íslandi sem byggir þjónustu sína eingöngu á 5G tækni og rafrænum símkortum (eSIM). „Við sameinum lágan rekstrarkostnað og nýjustu tækni til að bjóða einfaldari og hagkvæmari þjónustu. Með því að byggja lausnir okkar á forsendum gervigreindar frá fyrsta degi getum við bæði lækkað verð og bætt þjónustu. Með eingöngu stafræna þjónustu, þráðlausar 5G tengingar og rafræn símkort, höfum við tekið út allan óþarfa án þess að skerða gæði þjónustunnar,“ er haft eftir Sverri Hreiðarssyni, framkvæmdastjóra Kosmos. Kosmos leggi áherslu á eftirfarandi í fjarskiptaþjónustu: Lægsta verðið í net- og farsímaþjónustu á Íslandi Besta verðið á netinu í útlöndum, skýra og gagnsæja gjaldskrá Verðtryggingu í 2 ár – engin falin gjöld eða skyndilegar hækkanir Rafrænt símkort (eSIM) eingöngu – engin plastkort, enga bið Sjálfsafgreiðslu og gervigreind – framúrskarandi þjónustustig Þráðlausa 5G tenging – öflugt heimanet og gott samband um allt land „Í dag stígur Nova enn eitt djarft skref með stofnun Kosmos, nýs dótturfélags Nova Klúbbsins. Með tilkomu Kosmos erum við að mæta eftirspurn eftir einfaldari og ódýrari fjarskiptaþjónustu, á sama tíma og við aukum nýtingu innviða. Kosmos er byggt frá grunni sem lággjaldafélag sem nýtir eSIM, 5G-net og gervigreind til að bjóða einfalda og hagkvæma þjónustu,“ er haft eftir Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, forstjóra Nova Klúbbsins. „Félagið er rekið af litlum og öflugum hópi sem sýnir svart á hvítu hvernig gervigreind getur umbylt rekstrarlíkani í fjarskiptum. Með Kosmos erum við meðvitað að ögra okkur sjálfum og skapa beina samkeppni við Nova á einstaklingsmarkaði. Við trúum því einfaldlega að besta leiðin til að verja sterka stöðu sé að vera fyrst til að endurskilgreina hana. Á sama tíma hefur Nova búið til einfalda heildsöluvöru sem að aðrir aðilar geta nýtt sér. Þetta er leið til að nýta enn betur fjarskiptainnviði Nova.“
Nova Fjarskipti Gervigreind Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Sjá meira