Tónlist

Kyn­þokka­fullir með fortíðarþrá

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Ingi Bauer og Axel Birgisson voru að gefa út lög og tónlistarmyndband.
Ingi Bauer og Axel Birgisson voru að gefa út lög og tónlistarmyndband. Aron Ingi

Tónlistarmennirnir Axel Birgisson, betur þekktur sem Big Sexy, og Ingi Bauer voru að senda frá sér þrjú diskólög og tónlistarmyndband. Strákarnir leggja mikið upp úr kynþokka í listformi þeirra og eru sömuleiðis haldnir mikilli fortíðarþrá aftur til áttunda og níunda áratugarins. 

Hér má sjá tónlistarmyndbandið með öllum þremur lögum: 

Klippa: Ingi Bauer og Big Sexy - 80's myndband

Rokk, ról og diskó

Ingi Bauer og Big Sexy hafa gert gott mót á síðustu árum með tónlist sinni og sent frá sér ýmsa dansgólfssmelli. Undanfarið hafa þeir sótt innblástur í gömlu tímana og verið í diskó fíling.

„Við vorum uppi í stúdíói um daginn þegar Axel sýnir mér gamalt rokk lag og spyr mig hvort bassalínan í laginu væri ekki nett ef hún væri í diskó lagi. Ég prófaði og við enduðum á að gera heilt lag. 

Við erum báðir miklir eitís gaurar, elskum góða nostalgíu og hlustum mikið á gömlu góðu íslensku eitís lögin svo þetta lá beinast við,“ segir Ingi Bauer um verkefnið.

Strákarnir eru miklir aðdáendur diskósins.Aðsend

Daginn var Ingi búinn að gera nýtt lag sem þeir kláruðu líka.

„Ég mætti aftur í stúdíó til að til að leggja lokahönd á lagið en þá var Ingi þegar byrjaður á öðru eitís lagi. Daginn eftir það þá hugsuðum við báðir að við þyrftum eiginlega að gera þriðja lagið til að klára heildarsöguna,“ bætir Axel við.

Þrjú lög og myndband á fjórum dögum

Strákarnir kláruðu því þrjú lög á þremur dögum og eftir litla umhugsun ákváðu þeir að það þyrfti að vera myndband með þessu öllu.

„Við deilum stúdíórými með alls konar hæfileikaríku fólki sem við höfum myndað góð tengsl við. Því fengum við strákana í teyminu Myndarlegir til að taka upp myndband með okkur. 

Það tók heilan tökudag en það er alveg galið að ná að gera þrjú lög og myndbönd fyrir öll lögin á fjórum dögum án þess að vera með eitthvað heilsteypt plan.“

Strákarnir fóru aftur til 1980 og voru fullir af innblæstri. Þeir fengu nokkra þekkta vini með í myndbandið og má þar nefna Kristófer Acox körfuboltakappa og Fanneyju Rún.


Tengdar fréttir

„Alls konar blessanir í slæmu hlutunum“

Útvarpsmaðurinn Axel Birgisson sér glasið hálf fullt í lífinu og er gjarnan lýst sem miklum stemningsmanni. Lífið tók skarpa U-beygju í sumar þegar Axel greindist með illkynja æxli en hann segir lífsreynsluna hafa kennt sér heilmikið. Blaðamaður settist niður með Axel og ræddi við hann um lífið, ferilinn, tónlistina, ástina, vináttuna og margt fleira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.