Handbolti

Yfir­lýsing ÍBV: Haf­dís beðin af­sökunar og maðurinn í bann

Valur Páll Eiríksson skrifar
Hafdís í leik með íslenska landsliðinu.
Hafdís í leik með íslenska landsliðinu. vísir / hulda margrét

Handknattleiksdeild ÍBV hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna níðs í garð Hafdísar Renötudóttur á grundvelli kynhneigðar hennar í leik ÍBV og Vals í fyrrakvöld. Maðurinn sem varð vís að kalli í hennar garð hefur verið settur í bann og handknattleiksdeild ÍBV biður hana afsökunar.

Handknattleiksdeild ÍBV birti yfirlýsinguna nú síðdegis. Þar kemur fram að stakur einstaklingur í stúkunni hafi látið ummælin falla en ekki stuðningssveit Eyjaliðsins í heild.

Ummælin sem beindust að Hafdísi byggðu á kynhneigð hennar og atvikið harmað. Málið er á borði HSÍ sem fordæmir málið og má ÍBV eiga von á refsingum vegna þess.

Sá hafi verið settur í bann frá leikjum liðsins vegna málsins. Hafdís er þá beðin afsökunar í yfirlýsingunni.

Valur vann leikinn í Eyjum með tveggja marka mun og leiðir einvígið 2-0. Valskonur geta því tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn þegar liðin eigast við þriðja sinni að Hlíðarenda á laugardaginn kemur.

Yfirlýsing ÍBV:

Yfirlýsing frá Handknattleiksdeild ÍBV

Handknattleiksdeild ÍBV fordæmir alla mismunum í hvaða formi sem hún birtist og harmar orð sem voru látin falla af stuðningsmanni ÍBV gagnvart Hafdísi Renötudóttur í leik 2 í úrslitum Olís deildar kvenna.

Það skal tekið fram að þetta var einn aðili sem lét þessi orð falla en ekki stuðningsmannasveit ÍBV eða stuðningsmenn ÍBV yfir höfuð.

Það hefur verið tekið á þessu máli innanbúðar eftir að forsvarsmenn handknattleiksdeildarinnar fengu veður af málinu og þessi tiltekni aðili settur í tímabundið bann.

Fyrir hönd handknattleiksdeild ÍBV biðjum við Hafdísi Renötudóttur afsökunar og vonum að þetta muni ekki hafa meiri áhrif á þetta glæsilega einvígi sem hefur átt sér stað og stendur enn yfir.

Fyrir hönd Handknattleiksdeildar ÍBV

Garðar B. Sigurjónsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×