Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. maí 2026 21:39 Magnús Óli mætti aftur í oddaleikinn eftir harkalegt höfuðhögg. vísir / diego „Þetta eru blendnar tilfinningar. Örugglega minn síðasti leikur á ferlinum, gegn mínu uppeldisfélagi, en ég enda þetta sem Íslandsmeistari. Ég get ekki alveg lýst tilfinningunum mínum núna“ segir Magnús Óli Magnússon eftir 27-26 sigur Vals í oddaleik gegn FH um Íslandsmeistaratitilinn.
Magnús Óli fékk þungt höfuðhögg og heilahristing í þriðja leik liðanna. Óttast var að tímabilinu væri lokið hjá honum en hann sneri aftur í oddaleiknum, var næstmarkahæstur hjá Val með 4 mörk og stóð uppi sem Íslandsmeistari. Hann segir ekkert annað hafa komið til greina en að spila þennan síðasta leik á ferlinum. „Nei. Ég fékk leyfi frá lækni og var ekki með nein einkenni. Ég prófaði í gær og allt í góðu, þannig að ég ákvað bara að kýla á þetta,“ sagði Magnús í viðtali við Þorstein Hjálmsson eftir leik. Sigurinn í oddaleiknum gegn FH skilaði sér eftir mikla spennu. Valur byrjaði vel og leiddi mest með sex mörkum í fyrri hálfleik en FH barðist til baka í seinni hálfleik og jafnaði leikinn. Valur náði svo forystunni á ný og vörnin skilaði sigrinum þegar hún lokaði á lokasókn FH. „Þetta er bara ótrúlegt lið. Það voru allir á milljón allan tímann. Við náðum góðu forskoti, hefðum getað komist í sjö en missum forskotið niður í fjögur fyrir hálfleik. Byrjum seinni hálfleik frekar illa, en við erum alltaf með þessi mörk í okkur. Svo skrúfuðum við upp vörnina í lokin og lokuðum þessu.“ Magnús Óli var staðráðinn í að spila oddaleikinn og lét höfuðhögg ekki stoppa sig. vísir / diego Hvernig fagna Valsmenn þessum titli? „Við fögnum þessu í Fjósinu í kvöld, eitthvað inn í helgina og alveg fram á sumar,“ sagði Magnús að lokum. Hann verður 34 ára á morgun og mun vakna sem Íslandsmeistari en skórnir verða væntanlega á leið upp í hillu.
Valur Olís-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Sjá meira