„Þú varst ekki frekari en ég, það er aldrei að fara að gerast“ Sindri Sverrisson skrifar 8. maí 2026 10:47 Fanndís leyfði Birni að ráða í þetta skiptið. Sýn Sport Fanndís Friðriksdóttir og Björn Sigurbjörnsson hlógu dátt þegar þau fóru yfir „rifrildi“ sitt um hvaða leikmaður Þróttar hefði verið bestur í 3-0 sigrinum gegn Fram í Bestu deildinni.
Fanndís og Björn voru sérfræðingar Helenu Ólafsdóttur í Bestu mörkunum á Sýn Sport Ísland í gærkvöld. Í undirbúningnum fyrir þáttinn þurftu þau meðal annars að velja mann leiksins í sigri Þróttar en voru mjög ósammála og stóðu í deilum um það fram á kvöld. „Jelena [Tinna Kujundzic] er minn maður leiksins. Hún átti frábæra fyrirgjöf, spilaði allar níutíu mínúturnar og skoraði mark. Þinn leikmaður er tekinn út af á 59. mínútu, skoraði ekki og lagði ekki upp. Leikurinn snýst um að skora,“ sagði Fanndís en var þó lauflétt í bragði. „Ég kaupi allt sem þú segir,“ sagði Björn. „Ekki í gærkvöldi!“ kallaði þá Fanndís en umræðuna má sjá hér að neðan. Klippa: Bestu mörkin: Ósammála um mann leiksins „Jú, jú. Jelena heldur hreinu, skorar og á fyrirgjöf sem leiðir að marki. Mér fannst hins vegar Þórdís [Elva Ágústsdóttir] vera „köngulóinn í miðju netinu“. Það er hægt að senda á hana alls staðar, hún losar pressu og gerir leikmenn í kringum sig mikið betri,“ sagði Björn sem var hissa á að Þórdísi væri skipt út af hálftíma fyrir leikslok, í stöðunni 1-0. „Ég er mjög sammála þessu. Ég hef spilað með Þórdísi og þetta er allt rétt sem þú segir. Hún er búin að bæta sig í þessu,“ sagði Fanndís en hélt sig við það að Jelena hefði verið maður leiksins. „Ég var frekari í þetta skiptið,“ sagði Björn sem fékk sínu fram. „Ég leyfði þér að ráða. Þú varst ekki frekari en ég, það er aldrei að fara að gerast,“ sagði þá Fanndís hlæjandi. Hægt er að horfa á Bestu mörkin á Sýn+ og í vefsjónvarpi Sýnar.
Besta deild kvenna Þróttur Reykjavík Bestu mörkin Mest lesið Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Knattspyrnusamband Asíu tekur U-beygju í málum Infantino Fótbolti Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Verðlauna stuðningsmenn sína fyrir að nota ekki símana Fótbolti Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Körfubolti Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin Íslenski boltinn Stórleiknum frestað vegna mótmælanna Fótbolti Fleiri fréttir KR - Breiðablik | Slær Aron markametið? ÍA - Keflavík | Geta náð besta árangri í mörg ár FH - Þór | Ævintýri Þórsara fullkomnað? KA - ÍBV | Taka gestirnir KA-menn með sér niður? Stjarnan - Valur | Kveðjustund í Garðabæ Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Sjá meira