„Eitt allra eftirminnilegasta íþróttalið síðasta áratuginn“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. maí 2026 09:01 Leikmenn Selfoss tollera Patrek Jóhannesson eftir að liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn vorið 2019. vísir/vilhelm Eftirminnileg endurkoma karlaliðs Selfoss í handbolta gegn Haukum í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn 2019 er til umfjöllunar í þrettánda þætti Augnablikanna, „Enn ein endurkoman.“
Patrekur Jóhannesson tók við þjálfun Selfoss sumarið 2017 og á fyrsta tímabilinu undir hans stjórn komst liðið í undanúrslit Íslandsmótsins þar sem það tapaði fyrir FH í oddaleik. Tímabilið á eftir fóru Selfyssingar alla leið í úrslit þar sem þeir mættu Haukum. Selfoss vann fyrsta leikinn en Haukar leik tvö og voru í kjörstöðu til að vinna þriðja leikinn. Þegar skammt var til leiksloka voru Hafnfirðingar með fimm marka forystu, 26-21. Á þessum árum voru Selfyssingar gjarnir á að koma til baka eftir að hafa lent í ógöngum og það gerðu þeir, einu sinni sem oftar, í leiknum gegn Haukum á Ásvöllum. Miklu munaði um frammistöðu Sölva Ólafssonar sem varði helming þeirra skota sem hann fékk á sig í þriðja leiknum í úrslitaeinvíginu 2019. „Þetta er eitthvað það óvæntasta sem maður hefur séð. Þegar þú horfir til baka yfir þessi tvö tímabil var markvarslan alltaf lítil sem engin og það var alltaf það sama, ef þeir væru með þennan eða hinn og gætu ruslað upp 37 prósenta markvörslu væru þeir óstöðvandi,“ sagði Tómas Þór Þórðarson í Augnablikunum en hann stýrði Seinni bylgjunni á árunum 2017-19. Klippa: Augnablikin - Enn ein endurkoman „Þetta var leik eftir leik eftir leik. Meira að segja þegar þeir voru að vinna var talað um að þeir hefðu getað unnið þetta enn stærra og stundum voru þeir í leikjum sem voru spennandi en þurftu ekkert að vera spennandi því markvarslan var ekki.“ Patrekur tók leikhlé í stöðunni 26-21 fyrir Haukum og lagði línurnar fyrir lokasprettinn. Hann bætti aukamanni í sóknina fyrir síðustu mínútur leiksins. „Sóknarlega vorum við mjög sjaldan í sjö á sex. Mér fannst ég vera með þannig lið að við ættum að geta klárað þetta sex á sex. Það var líka ánægjulegt, að það gekk upp fyrir okkur. Ég man að við vorum búnir að fara ágætlega yfir það ef Haukarnir færu í sjö á sex og þeir gerðu það allavega í framlengingunni,“ sagði Patrekur en Selfyssingum tókst að jafna metin og tryggðu sér svo sigurinn í framlengingu, 30-32. Þeir unnu svo fjórða leikinn á heimavelli og urðu því Íslandsmeistarar. „Þetta var ógleymanlegt og eitt það alskemmtilegasta sem maður hefur gert á sínum ferli. Það er ekki spurning að þetta er eitt allra eftirminnilegasta íþróttalið, og sigurlið þvert á íþróttir, síðasta áratuginn,“ sagði Tómas. Brot úr „Enn einni endurkomunni“, þrettánda þætti Augnablikanna, má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Þátturinn verður sýndur á Sýn Sport Ísland klukkan 18:30 í kvöld. Þáttinn má svo nálgast á efnisveitu Sýnar Sport.
Olís-deild karla UMF Selfoss Augnablikin Tengdar fréttir „Þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður“ Þegar Hulda María Agnarsdóttir var nýorðin sautján ára setti hún niður risastóra þriggja stiga körfu á ögurstundu í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Fjallað er um körfuna hennar Huldu í tólfta þætti Augnablikanna, „Draumaþristur á Eurovision-kvöldi.“ 4. maí 2026 09:00 Þegar Síkið þagnaði: „Keyri bara á körfuna og legg hann ofan í“ Eftirminnileg atburðarás undir lok oddaleiks Tindastóls og Þórs Þ. í átta liða úrslitum efstu deildar karla í körfubolta 2019 er til umfjöllunar í ellefta þætti Augnablikanna sem nefnist „Stuldurinn í síkinu.“ 3. maí 2026 09:02 „Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Fræg vítavarsla Ingvars Jónssonar, sem hafði stór áhrif á baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla 2021, er til umfjöllunar í tíunda þætti Augnablikanna. Ingvar viðurkennir að það hefði verið hægt að reka hann út af áður en vítaspyrnan var tekin. 27. apríl 2026 09:03 Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum. 26. apríl 2026 09:31 Meiddist tveimur vikum fyrir EM: „Er þetta raunverulegt? Er ég að fara að keppa?“ Í áttunda þætti Augnablikanna er sigur Eyglóar Fanndal Sturludóttur á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í apríl í fyrra tekinn fyrir. 20. apríl 2026 09:02 Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Inngrip Kjartans Henrys Finnbogasonar í baráttuna um danska meistaratitilinn í fótbolta 2018 er til umfjöllunar í sjöunda þætti Augnablikanna. 19. apríl 2026 09:02 Draumamark Atla gegn Motherwell: „Ég man ekkert hvað kom út úr mér“ Eftirminnilegt sigurmark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna gegn Motherwell sumarið 2014 er til umfjöllunar í fimmta þætti Augnablikanna. 12. apríl 2026 09:00 Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona. 6. apríl 2026 09:03 Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin. 5. apríl 2026 08:00 Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00 Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02 Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02 Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Átta mörk Óðins en gullið að renna úr greipum Benedikt og Sigurjón leiddu Kolstad að titlinum Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM Einar Bragi í miklu stuði eftir ráð pabba og skrefi frá titlinum Verður Aron þjálfari FH? Göppingen vann Einar án Ýmis Elín Klara sænskur meistari Haukur kom að tíu mörkum en meistararnir fögnuðu sigri Nýjasti titillinn í næstmestu uppáhaldi hjá Gísla Góður sigur en erfitt að ná Meistaradeildarsæti Rúnar sigraði á móti sínum gömlu íslensku lærisveinum Donni og félagar komnir í úrslit Allt jafnt í úrslitaeinvíginu Einar Rafn snýr aftur í Fjörðinn Haukur mikilvægari en Gidsel Haukur fær nýjan samning eftir ótrúlega leiktíð Samningur í höfn: Þjóðverjar treysta á Alfreð fram yfir ÓL í Los Angeles Dagur orðaður við stórlið en kapallinn langur Sjá meira
„Þegar ég sá hann fara ofan í var ég bara: Guð minn góður“ Þegar Hulda María Agnarsdóttir var nýorðin sautján ára setti hún niður risastóra þriggja stiga körfu á ögurstundu í oddaleik um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Fjallað er um körfuna hennar Huldu í tólfta þætti Augnablikanna, „Draumaþristur á Eurovision-kvöldi.“ 4. maí 2026 09:00
Þegar Síkið þagnaði: „Keyri bara á körfuna og legg hann ofan í“ Eftirminnileg atburðarás undir lok oddaleiks Tindastóls og Þórs Þ. í átta liða úrslitum efstu deildar karla í körfubolta 2019 er til umfjöllunar í ellefta þætti Augnablikanna sem nefnist „Stuldurinn í síkinu.“ 3. maí 2026 09:02
„Eins og sprengjum væri varpað á völlinn því það brjáluðust allir“ Fræg vítavarsla Ingvars Jónssonar, sem hafði stór áhrif á baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla 2021, er til umfjöllunar í tíunda þætti Augnablikanna. Ingvar viðurkennir að það hefði verið hægt að reka hann út af áður en vítaspyrnan var tekin. 27. apríl 2026 09:03
Pabbi Hemma fór úr Höllinni og sá aldrei þristinn fræga Í níunda þætti Augnablikanna er fjallað um fræga þriggja stiga körfu Hermanns Haukssonar í bikarúrslitaleik Njarðvíkur og Keflavíkur 1999. Njarðvíkingar voru í ómögulegri stöðu þegar skammt var til leiksloka en tryggðu sér framlengingu eftir ótrúlegan endasprett og unnu leikinn á endanum. 26. apríl 2026 09:31
Meiddist tveimur vikum fyrir EM: „Er þetta raunverulegt? Er ég að fara að keppa?“ Í áttunda þætti Augnablikanna er sigur Eyglóar Fanndal Sturludóttur á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í apríl í fyrra tekinn fyrir. 20. apríl 2026 09:02
Braust út úr klefanum þegar æfir stuðningsmenn Bröndby fóru heim til hans Inngrip Kjartans Henrys Finnbogasonar í baráttuna um danska meistaratitilinn í fótbolta 2018 er til umfjöllunar í sjöunda þætti Augnablikanna. 19. apríl 2026 09:02
Draumamark Atla gegn Motherwell: „Ég man ekkert hvað kom út úr mér“ Eftirminnilegt sigurmark Atla Jóhannssonar fyrir Stjörnuna gegn Motherwell sumarið 2014 er til umfjöllunar í fimmta þætti Augnablikanna. 12. apríl 2026 09:00
Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Í fjórða þætti Augnablikanna bregðum við okkur 23 ár aftur í tímann og rifjum upp frægt mark Andra Stefan sem tryggði Haukum frækið jafntefli gegn Barcelona. 6. apríl 2026 09:03
Ferðalagið hans Jeb Ivey: Spurði Inga hvort hann væri brjálaður Flestir blótuðu eldgosinu í Eyjafjallajökli í sand og ösku en ekki fólkið í Stykkishólmi. Í þriðja þætti Augnablikanna er sagan af ótrúlegu ferðalagi Jebs Ivey fyrir annan leik Snæfells og Keflavíkur í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta karla 2010 rakin. 5. apríl 2026 08:00
Varð landsfræg á einni nóttu: „Hefur alveg mótað mig í gegnum lífið“ Handboltakonan Lovísa Thompson segir að það hafi verið krefjandi að verða allt í einu landsfræg á einni nóttu eftir að hún tryggði Gróttu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil, þá aðeins fimmtán ára. 31. mars 2026 09:00
Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi. 30. mars 2026 08:02
Íslensku íþróttaugnablikin: „Hann var búinn að flauta“ Í Augnablikunum, nýjum þáttum úr smiðju Sýnar Sports, er fjallað um þekkt og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. 29. mars 2026 09:02