ÍBV fær háa sekt vegna ósæmilegrar hegðunar stuðningsmanns Aron Guðmundsson skrifar 10. maí 2026 15:34 Ósæmileg hegðun stuðningsmannsins beindist gegn Hafdísi Renötudóttur, markverði Vals Vísir/Pawel Cieslikiewicz Handknattleiksdeild ÍBV hefur verið gerð sekt sem nemur 150 þúsund krónum sökum vítaverðrar og ósæmilegrar hegðunar stuðningsmans liðsins á leik í úrslitaeinvígi Olís deildar kvenna milli ÍBV og Vals.
Eins og framvæmdastjóri HSÍ, Sólveig Jónsdóttir, greindi frá í samtali við Vísi fyrir helgi kom umrætt mál inn á borð sambandsins eftir leik tvö í einvígi ÍBV og Vals í Vestmannaeyjum. Kölll beindust að Hafdísi Renötudóttur, markverði Vals í leiknum þar sem heyra mátti stuðningsmann ÍBV kalla að henni: „Hafdís elskar skæri“. Þar er vísað til kynlífs tveggja kvenmanna en Hafdís er samkynhneigð. Málið fór inn á borð aganefndar HSÍ sem hefur nú kveðið upp úrskurð sinn og dæmt ÍBV til þess að greiða sekt vegna málsins að upphæð 150 þúsund krónum. Það er mat aganefndar að framkoma áhorfanda eða áhorfenda á ábyrgð ÍBV sem hér er vikið að, teljist vítaverð og ósæmileg í skilningi 18. gr. reglugerðar um agamál, sbr. einnig 17. gr. sömu reglugerðar. Þá er framkoman ósmekkleg og særandi gagnvart þeim leikmanni Vals sem hún beindist að og til þess fallin að valda íþróttinni álitshnekki. Aðildarfélög bera ábyrgð á stuðningsmönnum sínum og ber að tryggja að framkoma þeirra sé innan þeirra marka sem lög og siðareglur HSÍ setja. Telur nefndin því rétt að gera ÍBV refsingu vegna málsins. - Úr úrskurði aganefndar HSÍ Ummælin feli í sér gróft brot á grunngildum íþróttahreyfingarinnar en ÍBV hefur sett umræddan stuðningsmann í tímabundið bann frá leikjum liðsins. Úrskurð aganefndar HSÍ í málinu má lesa í heild sinni hér.
Olís-deild kvenna Valur ÍBV Mest lesið Brjóta lög fótboltans með sýningunni í hálfleik Fótbolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Fótbolti Bónorð strax eftir leik í Garðabæ Íslenski boltinn „Dapurlegt tímabil í sögu ríkis okkar“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Er dómarinn á því getustigi sem þarf í undanúrslitum HM?“ Fótbolti „Hann var farinn að spyrja hvenær við ætluðum að flytja til Íslands“ Íslenski boltinn Tvenna Daníels tryggði Víkingi meira en hundrað milljónir Fótbolti „Stjörnuhrap“ í frönsku miðlunum Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira