Handbolti

Ómar Ingi fór ham­förum og Íslendingaliðið einu skrefi frá titli

Aron Guðmundsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon fór hamförum í dag.
Ómar Ingi Magnússon fór hamförum í dag. Getty/Igor Kralj

Ís­lendingalið Mag­deburg stefnir hraðbyri í áttina að Þýska­land­smeistara­titlinum í hand­bolta. Liðið vann þrettán marka stór­sigur á HSV í dag. Læri­sveinar Guðjóns Vals Sigurðs­sonar í Gum­mers­bach höfðu síðan betur gegn Erlangen

Sigur Magdeburgar gegn HSV í dag var aldrei í hættu. Liðið var allan leikinn í forystunni og byggði upp forystu sína hægt og rólega og endaði sigurinn í þrettán marka forystu, 41-28. 

Ómar Ingi Magnússon fór hamförum í liði Magdeburgar í dag og skoraði heil ellefu mörk og að auki lagði hann upp þrjú. 

Gísli Þorgeir Kristjánsson kom svo að sjö mörkum hjá liðinu, skoraði þrjú og lagði upp fjögur. Þá skoraði Elvar Örn Jónsson tvö mörk og lagði upp þrjú. Einar Ólafsson skoraði eitt mark og lagði upp annað fyrir HSV.

Magdeburg vermir toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar. Er þar með 56 stig eftir þrjátíu leiki. Sjö stigum meira en Flensburg í öðru sætinu. Bæði lið eiga eftir fjóra leiki á tímabilinu. Magdeburg getur því tryggt titilinn í næstu umferð.

Á sama tíma lögðu lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í liði Gummersbach lið Erlangen að velli með fjögurra marka mun 26-22. Gummersbach er nær öruggt með fjórða sæti deildarinnar en getur enn farið hærra í töflunni því aðeins þrjú stig eru upp í Flensburg í 2.sætinu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×