Fjarsamband alltaf erfitt Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 12. maí 2026 10:37 Álfgrímur Aðalsteinsson var að gefa út tónlistarmyndband. Vísir/Vilhelm Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi hjá Álfgrími við lagið Dreymi. Með honum í för eru þau Kolbrún Óskarsdóttir og Hrannar Máni, betur þekkt sem tónlistartvíeykið KUSK og Óviti.
Tónlistarmyndbandið varð til þegar Álfgrímur, Kolbrún Óskarsdóttir (KUSK) og Hrannar Máni (Óviti) fóru saman í helgarferð til Parísar til að sjá Rosalíu á tónleikum. Hér má sjá myndbandið: Klippa: Álfgrímur ft. KUSK -DREYMI „Ég hef lengi verið þekktur meðal vina minna sem líklega stærsti Rosalíu-aðdáandi landsins en ég hef meðal annars skrifað lærða grein um tónleikaferðalag hennar,“ segir Álfgrímur brosandi. Á sama tíma var hann að vinna að fyrstu breiðskífu sinni Hjartnætti sem kom út 8. maí og ákváðu þau einfaldlega að nýta tækifærið til að taka upp tónlistarmyndband við lagið sem þau syngja saman á plötu Álfgríms í borg ástarinnar. Lagið Dreymi er númer sex á plötunni Hjartnætti. Myndbandið er tekið upp á síma þríeykisins í ferðinni og klippt af Álfgrími sjálfum. Þar sem þau eru nánir vinir er tónlistarmyndbandið persónulegt og meira eins og ferðadagbók eða mörg falleg augnablik úr skemmtilegu ferðalagi. Lag og texti er samið af Álfgrími og KUSK, pródúserað af Óvita en Áslaug Magnúsdóttir leikur á klarinett í laginu. Mix HÚNI master Glenn Schick. Textinn fjallar um fjarsamband og þær erfiðu tilfinningar sem fylgja því að elska einhvern úr fjarlægð.
Tónlist Frakkland Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist „Erum bara vinir“ Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira