Golfklúbbarnir í óðaönn við að útbúa sérstaka félagsaðild Jakob Bjarnar skrifar 15. maí 2026 14:43 Ólafur Þór hjá Keili segir að talsvert uppnám hafi skapast innan golfheimsins þegar bréf ÍSÍ um að golfklúbbarnir mættu ekki lengur hafa biðlista utan klúbba hafi birst. vísir/ívar Forkólfum golfklúbba landsins brá mörgum í brún þegar þeir litu bréf sem þeim barst frá lögmanni Stjórnsýslusviðs ÍSÍ, með milligöngu GSÍ, en þar kom fram að þeim sé óheimilt að synja einstaklingi um aðild á þeim forsendum að rými sé ekki til staðar í klúbbnum. „
Golfklúbbum er því eins og öðrum íþróttafélögum óheimilt að synja einstaklingi um aðild að félagi á þeirri forsendu einni að ekki sé rými til staðar fyrir fleiri til að nýta aðstöðu félagsins. Aðild að félagi og nýting aðstöðu eru þannig tvö aðskilin atriði sem ber að meðhöndla sem slík,“ segir í bréfinu sem sjá má í heild sinni í tengdum skjölum. Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri golfklúbbsins Keilis gagnrýnir skort á samráði ÍSÍ/GSÍ við aðildarfélögin. „Þetta er skipun send út án samtals. Það eru skrítin vinnubrögð. Það hefði mátt hittast og ræða þetta áður en þessu var hent út,“ segir Ólafur Þór. Ólafur Þór segir ekki ofsagt að veruleg læti innan golfheimsins hafi brotist út í kjölfar fréttarinnar sem birtist á Vísi á þriðjudaginn. Hann segir að þeir innan vébanda Keilis hafi nú skoðað bréfið og segir að ef menn horfi á þetta jákvæðum augum þurfi þetta ekki að vera neitt tiltökumál. „Þetta endar einfaldlega með því að við munum bjóða út einhvers konar þriðju aðild, sem er þá félagsmaður án spilaréttar.“ Klúbburinn að útfæra nýja aðild Ólafur Þór telur ástæðuna fyrir því að ÍSÍ fór af stað með þetta hljóti að vera kæra Kára Sölundarsonar formanns Golfklúbbsins Odds á hendur Golfklúbbi Þorlákshafnar til dómstóls GSÍ vegna fyrirkomulags auglýsts tilboðs um fjaraðild fyrir iðkendur án félagsréttinda. Þeir vilji bregðast við því auk ákvæða um almannarétt sem að ekki gangi að vera félagi án atkvæðaréttar á aðalfundi. „Við höfum nú þegar tvær tegundir aðildar. Önnur er full aðild og svo er hin sem felur í sér aðild að Sveinskotsvelli (sem er styttri níu holu völlur á Keili), takmarkaðan aðgang að Hvaleyrarvelli, afslátt á æfingarsvæði og kosningarétt á aðalfundi.“ Ólafur Þór segir þá að þriðju aðildinni gæti þá verið bætt við og eru menn að skoða það núna hvernig hún verður útfærð. ÍSÍ vilji útrýma biðlistum vegna almannaheilla og það verði þá að taka á því. Hann nefnir dæmi um að þú getir verið félagi í FH en það þýði ekki að þú hafir þar með aðgang að allri aðstöðu félagsins; þú farir ekkert inn á Krikann, Risann eða Dverginn og spilar fótbolta þar eins og ekkert sé. „Við erum með punktakerfi hjá okkur. Þú færð punkta fyrir eitt og annað svo sem spil á Sveinskotsvelli, hjónapunkta, ef þú býrð í Hafnarfirði færðu punkta, hafir þú farið á nýliðanámskeið og svo framvegis. Þetta verður væntanlega einhver aðgangsstýring.“ Líst ekki á að há forgjöf takmarki aðgengi Ólafur Þór segir þennan vanda augljóslega tengjast þeirri miklu sprengingu sem orðið hefur í áhuga fólks á golfinu. „Þetta er orðinn svo mikill fjöldi sem vill leggja stund á golfið. Þá ertu kominn með vissan undirbúning,“ segir hann og vísar til punktakerfisins. Vorgolf á Seltjarnarnesi. Þar hefur verið langur biðlisti og eru menn þar væntanlega að velta því fyrir sér hvernig bregðast skuli við bréfi ÍSÍ.vísir/vilhelm Ólafi Þór líst ekki á hugmyndir á borð við þær að takmarka aðgengi að Hvaleyrarvelli við tiltekna forgjöf, að þú fáir ekki að spila Hvaleyrarvöll nema þú sért til að mynda kominn með 24 í forgjöf hið minnsta. „Þá hreinsum við þrjátíu prósent úr klúbbnum. Vandamálið varðandi leikhraða er til að mynda ekki bundið við háa forgjöf. Í dag fara um 330 manns á degi hverjum í gegnum völlinn. Það er fyrst og fremst ef fólk þekkir ekki völlinn sem tafir myndast. Þegar koma þrjú til fjögur holl af gestum erum við í vandræðum og er eftirlitið að reyna að taka á því,“ segir Ólafur Þór. Tengd skjöl Bréf_til_golfklúbbaPDF291KBSækja skjal
ÍSÍ Golf Golfvellir Stjórnsýsla Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Fleiri fréttir Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Sjá meira