Guðjón Reykdal Óskarsson er látinn Atli Ísleifsson skrifar 21. maí 2026 07:51 Guðjón Reykdal Óskarsson starfaði hjá Íslenskri erfðagreiningu. Háskóli Íslands Guðjón Reykdal Óskarsson, doktor í líf- og læknavísindum og starfsmaður Íslenskrar erfðagreiningar, er látinn, 35 ára að aldri. Hann varð bráðkvaddur síðastliðinn mánudag.
Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í morgun. Guðjón fæddist í Falun í Svíþjóð 1. maí árið 1991. Hann lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut Fjölbrautaskólans á Suðurlandi árið 2010, þar sem hann var dúx skólans. Árið 2014 lauk Guðjón BS-gráðu í lyfjafræði frá Háskóla Íslands og MS-gráðu í lyfjafræði árið 2016. Samhliða doktorsnámi starfaði Guðjón hjá Íslenskri erfðagreiningu frá haustinu 2016. Hann varði doktorsritgerð sína í október 2021, en heiti hennar var Mat á áhrifum sjaldgæfra erfðabreytileika í víðtækum erfðamengisleitunum á blóðhag. Guðjón lauk auk þess meistaraprófi í hagnýtri siðfræði síðasta vor. Í æviágripum Guðjóns sem birtust í Morgunblaðinu kemur fram að hann hafi fæðst með Duchenne-vöðvarýrnunarsjúkdóminn en aldrei litið á sig sem sjúkling. Hann hafi alla tíð verið kraftmikill og áhugasamur og viljað leggja sitt af mörkum þar sem hann skrifaði meðal annars greinar um sjúkdóminn. Foreldrar hans eru Óskar S. Reykdalsson heilsugæslulæknir og Bryndís Guðjónsdóttir framhaldsskólakennari og systur Margrét Dís barnataugalæknir, Sigríður Erla augnlæknir og Guðrún Nína lungnalæknir.
Andlát Íslensk erfðagreining Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Djúp lægð úr suðri fer að hafa áhrif í kvöld Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Tóku á móti barni í sjúkrabíl Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Sjá meira