Handbolti

Nýjasti titillinn í næst­mestu upp­áhaldi hjá Gísla

Sindri Sverrisson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson fagnar í sigrinum gegn Flensburg á fimmtudaginn sem tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn.
Gísli Þorgeir Kristjánsson fagnar í sigrinum gegn Flensburg á fimmtudaginn sem tryggði Magdeburg þýska meistaratitilinn. Getty/Jan Woitas

Gísli Þorgeir Kristjánsson, Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson eru þegar búnir að tryggja sér þýska meistaratitilinn í handbolta, fyrir leikinn við Rhein-Neckar Löwen í dag í þriðju síðustu umferðinni.

Gísli, sem nú hefur orðið Þýskalandsmeistari fjórum sinnum, enn 26 ára gamall, var á meðal leikmanna sem þýski miðillinn Bild spurði hvaða leikir hefðu gert gæfumuninn í að vinna titilinn í ár. 

Hann var fljótur að benda á 35-33 sigurinn gegn meisturum síðasta árs, Füchse Berlín.

„Þegar maður talar um stóra leiki, þá var Berlínarleikurinn hérna heima mjög mikilvægur. Þegar maður sér hvar öll hin liðin tapa stigum, þá komumst við bara mjög vel í gegnum þetta og töpuðum aðeins fjórum stigum í heildina. Þetta eru leikirnir sem maður verður að vinna og þar sem meistaratitillinn ræðst,“ sagði Gísli við Bild.

 Gísli á meistaratitil með Kiel á ferilskránni, frá árinu 2020, en hafði þá lítið spilað með liðinu vegna meiðsla og skipt til Magdeburgar í janúar. Núna hefur hann verið í aðalhlutverki í þremur meistaratitlum með Magdeburg en einn þeirra stendur upp úr, sá fyrsti sem jafnframt kom eftir svo langa og erfiða baráttu við meiðsli.

„Fyrsti meistaratitillinn 2022 verður alltaf minn persónulegi númer eitt! Þessi núna kemur fast á hæla honum, en allir titlar eru geggjaðir!“ sagði Gísli við Bild.

Gísli og félagar geta svo bætt Evrópumeistaratitli við í júní því þeir eru komnir í undanúrslit Meistaradeildarinnar og mæta þar Füchse Berlín 13. júní áður en úrslitaleikurinn fer fram degi síðar, í Köln. Gísli var valinn verðmætasti leikmaður Meistaradeildarinnar þegar hann vann keppnina bæði í fyrra og árið 2023.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×