Týndi sjálfri sér til að þóknast öðrum Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 28. maí 2026 11:30 Tónlistarkonan Diljá Pétursdóttir var að senda frá sér lag og tónlistarmyndband. Aðsend „Lagið dregur fram þá togstreitu sem getur myndast þegar leitast er eftir samþykki, jafnvel á kostnað eigin velferðar,“ segir tónlistarkonan Diljá Pétursdóttir sem var að gefa út lagið Ó Rómeó ásamt tónlistarmyndbandi.
Diljá vakti fyrst athygli með sigri sínum í Söngvakeppninni árið 2023 og sem fulltrúi Íslands í Eurovision. Hún er óhrædd við að vera hrá í textasmíði sinni og með þessu lagi sýnir hún enn persónulegri og einlægari hlið. Samhliða útgáfunni kemur út tónlistarmyndband í leikstjórn Ásgeir Sigurðsson, en kvikmyndataka var í höndum Antons Karls Kristenssen. Myndbandið styður að sögn Diljár við tilfinningaheim lagsins og fangar spennuna á milli ástar, óvissu og sjálfsleitar sem liggur að baki verkinu. Hér má sjá myndbandið: Klippa: Diljá Pétursdóttir - Ó Rómeó „Lagið markar nýjan kafla í minni tónlistarsköpun þar sem persónulegri textar fá aukið rými. Ó Rómeó fjallar um að týna sjálfum sér til að þóknast öðrum, að gefa of mikið af sér í sambandi þar til eigin rödd og sjálfsmynd fer að dofna. Lagið dregur fram þá togstreitu sem getur myndast þegar leitast er eftir samþykki eða ást frá Rómeó, jafnvel á kostnað eigin velferðar,“ segir Diljá. Lagið var samið af Diljá ásamt Hákoni Guðni sem jafnframt framleiddi lagið. Hér má hlusta á það á streymisveitunni Spotify.
Tónlist Ástin og lífið Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist „Erum bara vinir“ Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira