Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Kristján Már Unnarsson skrifar 28. maí 2026 21:11 Baldvin Már Hermannsson, forstjóri og nýr stjórnarformaður Flugfélagsins Atlanta. Sigurjón Ólason Forstjóri Flugfélagsins Atlanta og nýr stjórnarformaður, Baldvin Már Hermannsson, segir kaup stærsta fraktflugfélags heims á 49 prósenta hlut gefa Atlanta aukinn alþjóðlegan slagkraft. Félagið verði áfram með höfuðstöðvar á Íslandi og í meirihlutaeigu stjórnenda félagsins.
Í kvöldfréttum Sýnar kom fram að lykilstjórnendur Air Atlanta, undir forystu forstjórans Baldvins Más, hefðu keypt 51 prósents hlut. „Þetta er framkvæmdastjórn félagsins öll og ég sem leiði hópinn,“ segir Baldvin Már Hermannsson. Hannes Hilmarsson, fráfarandi stjórnarformaður Atlanta.vísir/eyþór Fyrri aðaleigendur, undir forystu Hannesar Hilmarssonar, seldu sinn hlut. „Þetta eru ákveðin kaflaskil þar sem að núverandi meirihlutaeigendur eru bara að stíga stoltir frá borði eftir tuttugu ára uppbyggingu. Þeir tóku við félaginu, má segja, kannski ekki á frábærum stað,“ segir Baldvin. Mesta athygli vekur að stærsta fraktflugfélag heims, hið bandaríska Atlas Air, kemur inn með 49 prósenta hlut. Baldvin segir það viðurkenningu á því hve vel hafi tekist að styrkja og efla Air Atlanta. Bandaríska flugfélagið Atlas Air er stærsta frakflugfélag heims. Það er jafnframt stærsti flugrekandi Boeing 747-þotunnar.Getty „Þetta gefur okkur einfaldlega aukinn alþjóðlegan slagkraft til að efla félagið. Þetta gefur mögulega aðgengi að fleiri vélum.“ Atlas mun eignast nítján breiðþotur Air Atlanta, sem mun leigja þær til baka, og halda þær núverandi skráningum. Samtals eru félögin með um eitt hundrað breiðþotur í rekstri. Boeing 747-þotur hafa verið burðarás Air Atlanta.Air Atlanta „Þannig að samlegðin verður umtalsverð, sama hvort það kemur að kaupum á varahlutum, viðhaldsþjónustu, bara í sameiginlegum innkaupum og slíku. Þannig að tækifærin eru fjölmörg. Þeir horfa líka til þess að við höfum ýmislegt upp á að bjóða sem þeir hafa ekki; „trafik“-réttindi og annað,“ segir Baldvin hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: En kannski er stærsta spurningin þessi: Verður þetta fertuga flugfélag áfram íslenskt eða er þetta kannski bara byrjunin á því að erlendur flugrisi gleypi það með húð og hári? „Bara síður en svo,” svarar Baldvin Már. „Við erum með 51 prósents hlut í félaginu, ég er stjórnarformaður og forstjóri félagsins, þannig að völdin hvíla hjá okkur. Air Atlanta er ekki að fara neitt. Air Atlanta er fyrst og fremst alþjóðlegt flugfélag. Við erum ekki bara íslenskt, við erum líka með flugrekstrarleyfi á Möltu.“ Og raunar starfsstöðvar víða um heim. Höfuðstöðvar Air Atlanta í KópavogiEgill Aðalsteinsson „Þannig að Ísland er að sjálfsögðu þar sem við erum með höfuðstöðvarnar. Það eru engar breytingar þar. Það er sama stjórnendateymi, það er sama fólk, engar breytingar fyrirætlaðar og ekkert slíkt í kortunum. Reksturinn gengur vel og það er ástæðan fyrir því að Atlas hefur einhvern áhuga á því að koma og eiga við okkur samstarf,“ segir Baldvin Már Hermannsson. Atlas er stærsti flugrekandi Boeing 747-þotunnar í heiminum og fékk síðasta eintakið úr verksmiðjunni fyrir þremur árum, eins og fram kom í þessari frétt:
Air Atlanta Flug Boeing Kópavogur Tengdar fréttir Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Lykilstjórnendur Air Atlanta, undir forystu forstjórans Baldvins M. Hermannssonar, hafa keypt meirihluta félagsins. Jafnframt hefur bandaríska félagið Atlas Air Worldwide bæst í eigendahópinn. Eftir viðskiptin eiga lykilstjórnendurnir 51 prósenta hlut en Atlas 49 prósenta. 28. maí 2026 12:08 Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Hið árlega pílagrímaflug Air Atlanta er komið á fulla ferð, þrátt fyrir að vera nærri áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Milli fimm- og sexhundruð starfsmenn félagsins koma að verkefninu að þessu sinni. 28. apríl 2026 18:48 Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð Í skrifstofubyggingu í Smárahverfi í Kópavogi er stjórnstöð þakin svo mörgum tölvuskjám að minnir á geimferðamiðstöð. Stöðin á það sammerkt með NASA að þar sitja einnig sérfræðingar við skjái að fylgjast með að allt gangi vel í ferðum á fjarlægum slóðum. 2. apríl 2026 07:47 Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim „Íslendingar vita kannski ekki mikið um Atlanta. Þeir eru svo ósýnilegir í íslensku viðskiptalífi. Þar er bara yfirbyggingin og skrifstofan. En öll starfsemin er náttúrlega annarsstaðar.“ 29. mars 2026 07:47 Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Boeing 747-þotan er kölluð drottning himnanna enda var hún stærsta farþegaþota heims um áratugaskeið. Hin goðsagnakennda júmbóþota skipar einnig stærri sess í íslenskri flugsögu en flesta grunar. 5. mars 2026 22:42 „Ég vissi það þó að innkoman yrði að vera meiri en útgjöldin“ Einn helsti brautryðjandi flugútrásar Íslendinga, Arngrímur Jóhannsson, segir galdurinn að góðum árangri ekki flókinn; innkoman verði að vera meiri en útgjöldin. Í þættinum Flugþjóðin Stöð 2 í kvöld var fjallað um alþjóðaútrás Íslendinga í fluginu í gegnum tíðina. 18. mars 2025 21:42 Mest lesið Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Viðskipti innlent Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Viðskipti innlent Jafnrétti í stjórnum skilyrði fyrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Viðskipti innlent Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Sjá meira
Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Lykilstjórnendur Air Atlanta, undir forystu forstjórans Baldvins M. Hermannssonar, hafa keypt meirihluta félagsins. Jafnframt hefur bandaríska félagið Atlas Air Worldwide bæst í eigendahópinn. Eftir viðskiptin eiga lykilstjórnendurnir 51 prósenta hlut en Atlas 49 prósenta. 28. maí 2026 12:08
Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Hið árlega pílagrímaflug Air Atlanta er komið á fulla ferð, þrátt fyrir að vera nærri áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Milli fimm- og sexhundruð starfsmenn félagsins koma að verkefninu að þessu sinni. 28. apríl 2026 18:48
Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð Í skrifstofubyggingu í Smárahverfi í Kópavogi er stjórnstöð þakin svo mörgum tölvuskjám að minnir á geimferðamiðstöð. Stöðin á það sammerkt með NASA að þar sitja einnig sérfræðingar við skjái að fylgjast með að allt gangi vel í ferðum á fjarlægum slóðum. 2. apríl 2026 07:47
Flugfólkið hjá Atlanta flakkar um allan heim „Íslendingar vita kannski ekki mikið um Atlanta. Þeir eru svo ósýnilegir í íslensku viðskiptalífi. Þar er bara yfirbyggingin og skrifstofan. En öll starfsemin er náttúrlega annarsstaðar.“ 29. mars 2026 07:47
Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Boeing 747-þotan er kölluð drottning himnanna enda var hún stærsta farþegaþota heims um áratugaskeið. Hin goðsagnakennda júmbóþota skipar einnig stærri sess í íslenskri flugsögu en flesta grunar. 5. mars 2026 22:42
„Ég vissi það þó að innkoman yrði að vera meiri en útgjöldin“ Einn helsti brautryðjandi flugútrásar Íslendinga, Arngrímur Jóhannsson, segir galdurinn að góðum árangri ekki flókinn; innkoman verði að vera meiri en útgjöldin. Í þættinum Flugþjóðin Stöð 2 í kvöld var fjallað um alþjóðaútrás Íslendinga í fluginu í gegnum tíðina. 18. mars 2025 21:42