Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2026 10:30 Magnus Andersson hefur verið þjálfari Porto í Portúgal en fær nú tækifæri með landslið Noregs. Getty/ Diogo Cardoso Norska handknattleikssambandið hefur boðað til blaðamannafundar í dag þar sem sambandið mun kynna nýjan landsliðsþjálfari karla.
Á mánudag greindu nokkrir norskir fjölmiðlar frá því að það yrði Svíinn Magnus Andersson og samkvæmt heimildum TV 2 fær hann Danann Henrik Kronborg sér til aðstoðar. Hinn sextugi Andersson var þjálfari Þorsteins Leós Gunnarssonar hjá Porto þar til nýlega. Svíinn hefur áður þjálfað nokkur evrópsk lið og var landsliðsþjálfari Austurríkis frá 2010 til 2011. Jonas Wille fékk ekki að halda áfram með norska landsliðið en hann þjálfaði liðið frá 2022 til 2026. Liðið endaði í níunda sæti á Evrópumótinu í janúar sem voru mikil vonbrigði þar á bæ. Kristian Kjelling og Børge Lund hafa lengi verið taldir líklegir kandídatar til að taka við af Wille. Kjelling staðfesti við VG á mánudag að hann fengi ekki starfið. Á þriðjudag staðfesti Lund við Østlendingen að hann hefði fengið þau skilaboð fyrir viku síðan að sambandið hefði valið annan. Magnus Andersson var sjálfur frábær leikmaður, skoraði 919 mörk í 307 landsleikjum fyrir Svía og varð tvisvar heimsmeistari. Andersson var orðaður við íslenska landsliðsþjálfarastarfið árið 2008 og hafði mikinn áhuga á að taka við liðinu. Hann var þá einnig þjálfari FCK í Kaupmannahöfn og á endanum var það danska félagið sem lokaði á möguleikann á því að hann tæki einnig við íslenska landsliðinu. „Það er alveg ljóst að ég verð ekki næsti landsliðsþjálfari Íslands. Ég get staðfest það núna,“ sagði Andersson á sínum tíma við Henry Birgi Gunnarsson á Fréttablaðinu. „Ég er samningsbundinn FCK og get ekki tjáð mig mikið um þessar viðræður. Ég get samt ekki neitað því að mér fannst starfið mjög spennandi og ég hafði mikinn áhuga á því. Ég hefði ekki getað sinnt landsliðsþjálfarastarfinu af fullum krafti sökum skuldbindinga minna við FCK og ég held að það sé betra fyrir HSÍ að fá einhvern sem getur sinnt starfinu 100 prósent. Við sjáum samt hvað gerist í framtíðinni en tíminn hentar mér ekki, því miður núna,“ sagði Andersson og vildi ekki loka dyrunum að þeim möguleika að þjálfa landsliðið síðar. Guðmundur Guðmundsson tók við íslenska landsliðinu og nokkrum mánuðum síðar vann íslenska landsliðið silfurverðlaun á Ólympíuleikunum í Peking.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús Sjá meira