Handbolti

Missti af dýr­mætum stigum gegn meisturunum

Andri Broddason skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson er væntanlega svekktur að hafa ekki náð Meistaradeildarsæti með Gummersbach.
Guðjón Valur Sigurðsson er væntanlega svekktur að hafa ekki náð Meistaradeildarsæti með Gummersbach. Getty/Michael Hundt

Guðjón Valur Sigurðsson þjálfari Gummersbach missti af dýrmætum stigum í leik á móti toppliði Magdeburg í kvöld. Þetta er næstsíðasti leikur liðanna í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta en Magdeburg vann leikinn með þremur mörkum 38-35.

Gummersbach hefði með sigri getað komist einu stigi frá Meistaradeildarsæti en með tapi í leik kvöldsins er ljóst að liðið endar tímabilið í Evrópudeildarsæti.

Íslensku leikmenn Magdeburg spiluðu flottan leik þar sem Gísli Þorgeir Kristjánsson var með sex mörk og Ómar Ingi Magnússon var með þrjú. Að auki gaf Gísli Þorgeir tvær stoðsendingar og Ómar Ingi þrjár.

Í liði Gummersback spilar Teitur Örn Einarsson en hann skoraði aðeins eitt mark í þremur tilraunum. Markahæsti leikmaður leiksins var Miro Schluroff í liði Gummersbach en hann var með níu mörk.

Magdeburg er búið að tryggja sér Þýskalandsmeistaratitilinn en Gummersbach missti af mikilvægum stigum í baráttu liðsins um að komast í Meistaradeildina á næsta tímabili.

Síðasti leikur sem Gummersbach spilar í deildinni er gegn Hauki Þrastarsyni og félögum í Rhein Neckar Löwen. Lokaleikur Magdeburg í deildinni er gegn Wetzlar undir stjórn Rúnars Sigtryggssonar sem er í harðri fallbaráttu.


Tengdar fréttir

Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi

Guðjón Valur Sigurðsson og lærisveinar hans í Gummersbach hafa átt magnaða leiktíð í þýsku 1. deildinni í handbolta og eiga enn fræðilega möguleika á að komast í Meistaradeild Evrópu. Hann lýsir yfir vonbrigðum með að í baráttunni um sæti þar gæti lið Melsungen grætt á að tapa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×