Hefja söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar Freyja Þórisdóttir skrifar 4. júní 2026 10:31 Hjónin Vésteinn og Inga á góðri stundu. aðsend Söfnun fyrir fjölskyldu Ingu Daggar sem lést í kajakslysi í lok apríl hefur verið hrundið af stað og einnig hefur verið búin til styrktarsíða á Facebook. Hún var aðeins 44 ára gömul þegar hún lést og skilur eftir sig eiginmann og tvo unga syni.
Inga Dögg Kristinsdóttir fórst í kajakslysi á Skorradalsvatni þann 29. apríl, aðeins 44 ára gömul. Hún skilur eftir sig tvo litla drengi, Björn fjögurra ára og Hauk tveggja ára, og eiginmann, Véstein Valgarðsson. Ríflega hundrað og fimmtíu manns hafa þegar fylgt styrktarsíðu fjölskyldunnar á Facebook sem ber heitið Stuðningur við fjölskyldu Ingu Daggar. Ekkert sem getur komið í stað Ingu Greint var frá því að banaslys hefði orðið í Skorradalsvatni í færslu Lögreglunnar á Vesturlandi þann 30. maí en eiginmaður Ingu, Vésteinn, birti hjartnæma færslu þann 3. maí þar sem hann sagði ekkert geta komið í stað hennar. „Inga varð 44 ára. Ástin í lífi mínu, lífsförunauturinn minn. Ég fékk ekki að hafa hana nema í 6 ár. Glókollarnir okkar fengu ekki að hafa hana nema í 4 ár og 2 ár. Fallega, góða konan mín. Fallega, góða mamma litlu drengjanna. Það kemur ekkert í staðinn fyrir hana,“ skrifar hann. Aðstandendur fjölskyldunnar segja í tilkynningu að skyndilegt fráfall Ingu Daggar sé mikið högg fyrir Véstein og drengina þeirra tvo og kalli á miklar breytingar á högum þeirra. Því vilji þau óska eftir stuðningi velunnara við fjölskylduna, því stuðningur núna getur skipt miklu fyrir framtíð drengjanna. Í tilkynningunni sagði einnig að Inga hefði verið frá Skarði á Skarðsströnd. Hún hafi verið tannsmiður að mennt en hafi unnið lengst af við umönnun fatlaðra. „Hún var mikill náttúruunnandi, bæði á sjó og landi, og eyjar Breiðafjarðar voru hennar paradís. Síðustu árin bjó hún á Hvanneyri í Borgarfirði þar sem Vésteinn eiginmaður hennar nam búfræði, en fram undan hjá þeim hjónum var að hefja búskap.“ Þeim sem vilja leggja þeim lið er bent á reikning nr. 1110-05-402788, sem Vésteinn er skráður fyrir, kt. 121180-3169.
Skorradalshreppur Tengdar fréttir Banaslys í Skorradalsvatni Kajakræðari lést í slysi í Skorradalsvatni á Vesturlandi í gær, að sögn lögreglu. 30. apríl 2026 18:24 Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Fleiri fréttir Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Sjá meira
Banaslys í Skorradalsvatni Kajakræðari lést í slysi í Skorradalsvatni á Vesturlandi í gær, að sögn lögreglu. 30. apríl 2026 18:24