Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Aron Guðmundsson skrifar 9. júní 2026 08:31 Ögmundur Kristinsson, sem á að baki feril sem atvinnu- og landsliðsmaður er mættur í Víkina Vísir/Ívar Fannar Ögmundur Kristinsson er ánægður með að vera kominn úr frystikistunni á Hlíðarenda yfir til Víkings Reykjavíkur. Hann kýs að líta ekki í baksýnisspegilinn, ætlar að standa sig fyrir Víkinga og vin sinn Ingvar Jónsson sem berst við illkynja krabbamein.
Í Ögmundi frá Víkingar reynslumikinn markvörð með landsliðs- og atvinnumannaferil á bakinu. Hans krafta var ekki lengur óskað hjá Val og í ljósi undanþágu sem Víkingar fengu fyrir skiptunum er Ögmundur nú mættur í Víkina. Tækifærin verið af skornum skammti á Hlíðarenda, staðan snúin. „Auðvitað var það skrítið,“ segir Ögmundur um það hvernig hann var frystur hjá Val. „Þetta var ekki einsdæmi. Hafði gerst einu sinni áður. Maður vissi ekki alveg hvað maður ætti að gera en lífið kemur með eitthvað á borðið, maður verður bara að taka því. Maður setur bara fókus á eitthvað annað. Þetta kom svo upp og þá stökk ég á það. Það þýðir ekkert að líta í baksýnisspegilinn með svona mál. Fótboltinn er mikið til viðskiptalegs eðlis og pælingar hjá alls konar aðilum. Það þýðir ekkert bera kala gagnvart einum né neinum. Bara halda áfram.“ Hefur liðið vel í vetur Ögmundur er hungraður í að simpla sig inn af krafti, hann fór í verkefni með íslenska landsliðinu á dögunum og er klár í að hjálpa toppliði Bestu deildarinnar að sækja í átt að öllum titlum. „Það er partur af ástæðunni líka. Þetta er spennandi verkefni. Búið að líta mjög vel út hjá þeim undanfarin ár. Þeir eru að gera gott mót hér í Víkinni. Þá er það einföld ákvörðun að segja já.“ Ögmundur í leik með íslenska landsliðinu á sínum tímaVísir/getty „Staðan á mér er fín. Ég kem hérna inn og við tökum stöðuna þegar að æfingarnar byrja. Fór með landsliðinu til Tókýó á dögunum, það gekk bara fínt. Mér hefur liðið vel í vetur og vonandi að það haldi áfram. Líðan Ingvars og fjölskyldu hans í fyrirrúmi Atburðarásin verið hröð eftir að Ingvar Jónsson, sem varið hefur mark Víkinga á glæstum tímum, greindist með illkynja krabbamein. Hann háir nú sína baráttu utan vallar og Víkingar styðja við hann af fullum krafti. Samningur Ingvars við Víkinga var framlengdur í gær en hann og Ögmundur þekkjast frá fyrri tíð, meðal annars með íslenska landsliðinu. „Ég held að hugur allra fótboltaunnenda á Íslandi sé heils hugar hjá Ingvari. Hann er góður vinur minn. Leiðinlegar fréttir sem hann fær. En þekkjandi hann veit ég að Ingvar gerir allt sem hann getur til þess að berjast við þetta. Ég vona af öllu mínu hjarta að það gangi. Maður sér að Víkingarnir eru flottir og standa vel við bakið á honum. Það er til fyrirmyndar það sem að Víkingur og önnur lið hafa gert.“ Ögmundur vill standa sig í markinu fyrir öll þau sem koma að Víkingi Reykjavík, ekki síst vin sinn Ingvar.„Þetta var eitt af því sem að ég ræddi við Kára (Árnason, yfirmann knattspyrnumála). Ég vildi smá gera þetta fyrir Ingvar. Góður vinur og maður sér samstöðuna hér. Vonandi skilar það sé inn á vellinum en lífið er samt stærra en fótbolti. Menn hugsa fyrst og fremst um líðan Ingvars og hans fjölskyldu.“
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Valur Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira