Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Kristján Már Unnarsson skrifar 9. júní 2026 23:40 Þuríður Þorleifsdóttir, safnstjóri Verslunarminjasafnsins á Hvammstanga, sýnir ljósmyndir frá heimsókn Kristjáns tíunda konungs í verslunina Norðurbraut árið 1936. Egill Aðalsteinsson Þjóðvegasjoppan íslenska er loksins að fá sinn sess í menningarsögu landsins. Á Verslunarminjasafninu á Hvammstanga er heil sjoppa að bætast í flokk safngripa og kannski ein sú merkasta á landinu.
Í beinni útsendingu í kvöldfréttum Sýnar frá Hvammstanga var sagt frá versluninni Norðurbraut sem reis árið 1930 við gatnamót Norðurlandsvegar og afleggjarans að Hvammstanga. Þuríður Þorleifsdóttir, safnstjóri Verslunarminjasafnsins á Hvammstanga, telur að hún gæti verið elsta vegasjoppa landsins, í það minnsta sú elsta á Norðurlandi. Gamla þjóðvegasjoppan verður tengd við Verslunarminjasafnið á Hvammstanga með tengibyggingu.Egill Aðalsteinsson Heimamenn á Hvammstanga hafa í sjálfboðavinnu með stuðningi frá Minjastofnun unnið að endurgerð Norðurbrautar undanfarin ár. Innréttingarnar eru upprunalegar, sjoppulúgan og hillurnar, en einnig veggþiljurnar. Þuríður vonast til að unnt verða að opna hana sem hluta af safninu eftir eitt ár. Verslunin Norðurbraut stóð við gatnamót Norðurlandsvegar og Hvammstangavegar.Verslunarminjasafnið, Hvammstanga Á einn vegginn er búið að hengja upp gamla innkaupapoka búðarinnar þar sem taldar eru upp vörur sem fengust: Tóbak, sælgæti, öl, ávextir og margskonar vörur fyrir ferðamenn. Hvorki voru þó seldar pylsur né hamborgarar, segir Þuríður. Kristján tíundi, síðasti konungur Íslands, búinn að ganga erinda sinna. Verslunin Norðurbraut fyrir aftan.Verslunarminjasafnið, Hvammstanga Á veggnum eru einnig gamlar ljósmyndir af heimsókn Kristjáns tíunda, konungs Danmerkur og Íslands, í verslunina árið 1936 en hann var þá á ferð um Norðurland. Þuríður segir okkur frá því að sérstakur kamar hafa verið reistur fyrir konunginn við búðina. En hefur þessi konunglegi kamar varðveist? Þeirri spurningu er svarað hér í frétt Sýnar:
Húnaþing vestra Söfn Kóngafólk Verslun Húsavernd Tengdar fréttir Borða svið til styrktar endurbyggingu „elstu vegasjoppu landsins“ Íbúar á Hvammstanga og nærsveitum munu koma saman til sérstakrar sviðamessu á laugardag þar sem ágóðinn mun renna til endurbyggingar á Norðurbraut, sem lýst hefur verið sem elstu vegasjoppu landsins. 27. október 2022 09:30 Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Sveitarfélagi ekki skylt að smala ágangsfé úr skógræktarlandi Eldur kom upp í verslun í Hafnarfirði Fyrrum Sósíalistar stýra Ungum vinstri grænum „Leiðinlegt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Ísaksskóli eignast Ísaksskóla Inga um ótta kennara: „Staðan er grafalvarleg“ Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Kraumar enn í Wolt-sendlum Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Tafir á afhendingu á bóluefni við inflúensu Tilboðum hafnað í glæsibrúna en efnt til samkeppnisviðræðna Tíu mánuðir án ákvörðunar um umönnunarbilið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa BDSM á Íslandi fordæmir sýknudóm í ofbeldismáli Skoða að útvista rekstri Húsdýragarðsins til einkaaðila Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ Sjá meira
Borða svið til styrktar endurbyggingu „elstu vegasjoppu landsins“ Íbúar á Hvammstanga og nærsveitum munu koma saman til sérstakrar sviðamessu á laugardag þar sem ágóðinn mun renna til endurbyggingar á Norðurbraut, sem lýst hefur verið sem elstu vegasjoppu landsins. 27. október 2022 09:30