Íslenski boltinn

Þróttarar með þriggja stiga for­skot á toppnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þróttarar ætla að berjast um sæti í Bestu deild karla í fótbolta á næsta ári.
Þróttarar ætla að berjast um sæti í Bestu deild karla í fótbolta á næsta ári. @throttur

Þróttur náði í kvöld þriggja stiga forystu á toppi Lengjudeildar karla í fótbolta.

Þróttur vann þá 2-0 heimasigur á HK í Laugardalnum. Liðið er þremur stigum á undan Aftureldingu sem á leik inni.

Þetta var þriðji deildarsigur Þróttara í röð og sjötti sigurinn í níu deildarleikjum í sumar.

Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson skoraði fyrra markið á fjórtándu mínútu. Þetta var hans fjórða deildarmark í sumar.

Það síðara skoraði Magnús Þórðarson á 68. mínútu eftir undirbúning hjá Erni Braga Hinrikssyni.

HK átti möguleika á því að komast á toppinn með sigri en er eftir þetta tap í fjórða sætinu, fjórum stigum á eftir Þrótti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×