Syrgja Arnar Atla sem lést 24 ára gamall Sigurgeir Þorkelsson skrifar 26. júní 2026 13:42 Arnar Atli lést þann 19. júní síðastliðinn. Innsent „Það er með ólýsanlegri sorg í hjarta sem við kveðjum dásamlegan strák, einungis 24 ára gamlan, en hann féll fyrir eigin hendi á dögunum eftir mikla og erfiða baráttu,“ segir Sigfríður Agnes Friðfinnsdóttir um Arnar Atla Björnsson, fæddan 2. ágúst 2001, sem lést þann 19. júní síðastliðinn. Sigfríður, sem iðulega er kölluð Siffa, er æskuvinkona Evu Lindar, móður Arnars Atla. Siffa segir sorg fjölskyldunnar mikla og hefur blásið til söfnunar fyrir hennar hönd. „Fjölskyldan hefur ekki mikið á milli handanna og það væri gott að geta hjálpað þeim með útfararkostnað.“ Minnist Arnars með hlýju. „Við áttum mörg góð spjöll um lífið og tilveruna. Hann var líka mikill húmoristi og gat þrátt fyrir sín veikindi alltaf skotið inn húmor.“ Siffa segir Arnar Atla hafa verið einstaka sál og mikinn dýravin sem alltaf setti sjálfan sig ávallt í síðasta sæti. „Hann vildi allt fyrir alla gera og var tilbúinn að hjálpa öðrum jafnvel þegar hann átti sjálfur mjög erfitt.“ Arnars er meðal annars minnst fyrir listræna hæfileika sína. Innsent/Arnar Atli Þá hafi Arnar Atli einnig verið listrænn og skapandi. „Hann var magnaður listamaður sem skildi eftir sig fjölda af fallegum teikningum og málverkum sem sýndu hversu hæfileikaríkur hann var.“ Kerfið brást Arnari Atla Siffa segir hluta sorgarinnar vera hve sárlega kerfið hafi brugðist honum. „Því miður glímdi hann við fjölþættan vanda og kerfið brást honum strax frá barnæsku. Hann lenti ítrekað á milli kerfa og fékk ekki þá hjálp sem hann þurfti.“ Það var síðan þegar neyðin var stærst sem kerfið brást í síðasta skipti. „Síðasta skiptið sem hann var inni á geðdeild reyndi hann tvívegis að taka sitt eigið líf. Samt sem áður ákvað geðdeildin að útskrifa hann. En því miður viku eftir útskrift tókst honum endanlega að taka sitt eigið líf.“ Næmt auga fyrir smáatriðum skín í gegn á þessari teikningu Arnars. Innsent/Arnar Atli Ungi maðurinn með stóra hjartað veitti lífsbjörg Aðstandendur reyni nú að finna huggun í því að hafa fengið tækifæri til að kveðja hann á sjúkrahúsinu og að hann hafi nú fundið sinn frið. „Hann var úrskurðaður látinn 19. júní en þar sem hann var líffæragjafi var hjarta hans látið ganga svo allir gætu kvatt þennan fallega engil. Hann var svo góð sál og var alltaf tilbúinn til að gefa frá sér það síðasta sem hann átti, þótt hann ætti mjög lítið sjálfur. Meira að segja eftir hans andlát gaf hann frá sér það síðasta sem hann gat, sem voru hans líffæri, svo aðrir gætu öðlast betra líf.“ Söfnun stendur yfir Fjölskylda Arnars stendur nú frammi fyrir því að þurfa að standa straum af kostnaði við útför og hefur í því, eins og fram kom hér á undan, verið blásið til söfnunar. „Hver einasta króna telur og rennur beint í að gefa honum þá fallegu hinstu kveðjustund sem hann á skilið.“ Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218. Sorg Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Ástfangin pör á Djöflum Menning Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira
Sigfríður, sem iðulega er kölluð Siffa, er æskuvinkona Evu Lindar, móður Arnars Atla. Siffa segir sorg fjölskyldunnar mikla og hefur blásið til söfnunar fyrir hennar hönd. „Fjölskyldan hefur ekki mikið á milli handanna og það væri gott að geta hjálpað þeim með útfararkostnað.“ Minnist Arnars með hlýju. „Við áttum mörg góð spjöll um lífið og tilveruna. Hann var líka mikill húmoristi og gat þrátt fyrir sín veikindi alltaf skotið inn húmor.“ Siffa segir Arnar Atla hafa verið einstaka sál og mikinn dýravin sem alltaf setti sjálfan sig ávallt í síðasta sæti. „Hann vildi allt fyrir alla gera og var tilbúinn að hjálpa öðrum jafnvel þegar hann átti sjálfur mjög erfitt.“ Arnars er meðal annars minnst fyrir listræna hæfileika sína. Innsent/Arnar Atli Þá hafi Arnar Atli einnig verið listrænn og skapandi. „Hann var magnaður listamaður sem skildi eftir sig fjölda af fallegum teikningum og málverkum sem sýndu hversu hæfileikaríkur hann var.“ Kerfið brást Arnari Atla Siffa segir hluta sorgarinnar vera hve sárlega kerfið hafi brugðist honum. „Því miður glímdi hann við fjölþættan vanda og kerfið brást honum strax frá barnæsku. Hann lenti ítrekað á milli kerfa og fékk ekki þá hjálp sem hann þurfti.“ Það var síðan þegar neyðin var stærst sem kerfið brást í síðasta skipti. „Síðasta skiptið sem hann var inni á geðdeild reyndi hann tvívegis að taka sitt eigið líf. Samt sem áður ákvað geðdeildin að útskrifa hann. En því miður viku eftir útskrift tókst honum endanlega að taka sitt eigið líf.“ Næmt auga fyrir smáatriðum skín í gegn á þessari teikningu Arnars. Innsent/Arnar Atli Ungi maðurinn með stóra hjartað veitti lífsbjörg Aðstandendur reyni nú að finna huggun í því að hafa fengið tækifæri til að kveðja hann á sjúkrahúsinu og að hann hafi nú fundið sinn frið. „Hann var úrskurðaður látinn 19. júní en þar sem hann var líffæragjafi var hjarta hans látið ganga svo allir gætu kvatt þennan fallega engil. Hann var svo góð sál og var alltaf tilbúinn til að gefa frá sér það síðasta sem hann átti, þótt hann ætti mjög lítið sjálfur. Meira að segja eftir hans andlát gaf hann frá sér það síðasta sem hann gat, sem voru hans líffæri, svo aðrir gætu öðlast betra líf.“ Söfnun stendur yfir Fjölskylda Arnars stendur nú frammi fyrir því að þurfa að standa straum af kostnaði við útför og hefur í því, eins og fram kom hér á undan, verið blásið til söfnunar. „Hver einasta króna telur og rennur beint í að gefa honum þá fallegu hinstu kveðjustund sem hann á skilið.“ Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Þau sem misst hafa ástvin í sjálfsvígi er bent á stuðning í Sorgarmiðstöð s. 551-4141, upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is og á Píeta símann s.552-2218.
Sorg Mest lesið RJ Mitte er látinn Lífið Össur stendur með sundmönnunum Lífið Hvað veistu um... árið 1986? Lífið Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Lífið Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Lífið Boxar til að halda sjúkdómnum í skefjum Menning Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Lífið Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lífið „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Tónlist Ástfangin pör á Djöflum Menning Fleiri fréttir RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Sjá meira