Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 7. júlí 2026 09:06 Beta Eyþórs var að senda frá sér nýtt en samt gamalt lag. Anna Maggý „Til að gera langa sögu stutta þá er ég með athyglisbrest á hæsta stigi. Fyrsta útgáfan datt óvart út af streymisveitum og ég veit ekki einu sinni hvenær það var,“ segir tónlistarkonan Elísabet Eyþórsdóttir, betur þekkt sem Beta. Hún var að senda frá sér lagið „Do It On My own“, í annað sinn, nú sjö árum seinna.
Beta vakti mikla athygli með hljómsveitinni Systrum og fór út til Ítalíu fyrir Íslands hönd í Eurovision árið 2022. Hún hefur sömuleiðis verið að gefa út undir eigin nafni og fagnar því að geta loksins aftur gefið út lagið. Beta er í skýjunum að geta gefið lagið aftur út.Aðsend „Lagið á sér sannarlega sérstaka sögu, þetta var fyrsta sóló lagið mitt og kom út árið 2019. Nú sjö árum seinna kemur það aftur út, betra seint en aldrei,“ segir Beta kímin. Nýja útgáfan, sem má hlusta á hér, er einstök blanda af upptökum frá árunum 2019 og nýrri vinnu frá 2026. „Stór hópur tónlistarmanna lagði hönd á plóg við gerð lagsins. Elín systir er með-textahöfundur, Ari Bragi Kárason leikur á trompet, Eyþór Gunnarsson faðir minn á hljómborð, Andri Ólafsson sér um bassa og slagverk, Hróðmar Sigurðsson spilar á gítar og Magnús Trygvasen Eliassen situr við trommurnar. Hljóðritun og mixun lagsins var í höndum Ásmundar Jóhannssonar og Sigurdór Guðmundsson sá um masteringu, þvílík forréttindi að fá að vinna með þessu fólki og ég er full þakklætis,“ segir Beta og brosir. View this post on Instagram A post shared by Beta Ey (@betaey) Heiti lagsins vísar til sjálfstæðis og fylgdi Beta þeim boðskap alla leið í nýja ferlinu. „Ég tók allan sönginn upp sjálf heima hjá mér sem er alvöru „Ég ætla að gera þetta sjálf“ stæll.“
Tónlist Mest lesið Íslensk listakona sló í gegn í Miami Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið Arnór Sig kominn á fast Lífið Tæplega þriggja áratuga löng gönguferð á enda Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Tónlist Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar Lífið samstarf Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir Lífið Þessi eru tilnefnd til Hönnunarverðlauna Íslands Tíska og hönnun Fleiri fréttir Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira